Garðyrkjuritið 2020 er komið út og hefur verið dreift til félagsmanna í Garðyrkjufélagi Íslands.
Ritið í ár er hið hundraðasta í röðinni en það hefur komið út með fáeinum hléum allt frá stofnun félagsins fyrir 135 árum. Ritið í ár er, eins og áður, stútfullt af forvitnilegu og fræðandi efni sem höfðar til bæði áhugafólks um gróður og garða sem og sérfræðinganna. Ritstjóri er Björk Þorleifsdóttir.
Meðal efnis má nefna grein um mælingu á kolefnisbindingu heimagarða á höfuðborgarsvæðinu sem færir okkur heim sanninn um að ræktun heima við hús skiptir umtalsverðu máli við bindingu kolefnis í jörðu. Sagt er frá áhrifamætti heilandi garða og heilsubót sem garðyrkjan hefur í för með sér og athyglisverða grein er einnig að finna um ilmjurtir í heimagörðum. Fjallað er um moltugerð, yglurnar í garðinum, aldingarða æskunnar og rósir af ýmsum toga og margvíslegum uppruna. Glæsilegar myndir eru af rósum ársins á Íslandi og hinum Norðurlöndunum og hægt er að læra að fjölga rósum með sumarstiklingum í fróðlegri grein Vilhjálms Lúðvíkssonar, formanns Rósaklúbbs GÍ.
Tómas Ponzi skrifar forvitnilega grein um ræktun harðgerra tómatayrkja, Guðríður Helgadóttir skrifar um kristilegar nafngiftir blóma, Hafsteinn Hafliðason er með grein um ræktun Kálfafellsrófunnar og fjölskylduna á Kálfafelli og mætti svo lengi telja.
Garðyrkjuritið er borið heim til félagsmanna GÍ á hverju vori – sem er enn eitt dæmið um kosti þess að vera félagi í Garðyrkjufélagi Íslands.
Sumardagurinn fyrsti er í næstu viku. Þessi siður að fagna sumri löngu áður en það lætur á sér kræla er örugglega til marks um óbilandi bjartsýni Íslendinga. Þetta reddast, sumarið er rétt handan við hornið. Tökum forskot á sæluna og höldum upp á það, svona löngu áður en snjóa leysir og lóan mætir á svæðið. Það er líka dæmigert fyrir þjóðarsálina sem vill framkvæma allt strax að sleppa millikaflanum, vorinu og vaða beint í sumarið. Ekkert hangs, drífa í hlutunum, hækka hitann í hvelli og fara að rækta eitthvað almennilegt, pota niður kartöflunum, planta kálinu og sumarblómunum og gróðursetja berjarunna fyrir hádegi.
Raunveruleikinn er hins vegar ekki alltaf svona. Við höfum upplifað vor sem hafa virst endalaus og svo skyndilega breyst í haust, án nokkurrar viðkomu í sumri. Við höfum líka upplifað sólrík og hlý sumur sem hafa vakið með okkur vonir um sólbrúnku og grósku í umhverfinu. Ísland er land fjölbreytileikans.
Nú er sem sagt sumardagurinn fyrsti í næstu viku. Við fögnum sumrinu samkvæmt venju og tökum okkur hlé frá vinnunni. Það er þó mikilvægt að falla ekki í þá freistni að ætla sér að gera vorhreingerninguna í garðinum á sumardaginn fyrsta. Slíkt er einfaldlega ekki tímabært. Reynsla okkar hefur sýnt okkur fram á að fram eftir maí er alltaf hætta á að frjósi á nóttunni. Laufblöð, stönglar og fleira sem fellur til á haustin liggur yfir lágvöxnum plöntum allan veturinn og hlífir þeim fyrir kulda og umhleypingum, þetta er nokkurs konar lífræn ábreiða sem brotnar svo niður þegar hlýnar og nýtist plöntunum sem næring fram á sumar. Því miður er það samt svo að garðeigendur vilja gjarnan að garðarnir líti snyrtilega út, á vorin jafnt sem á sumrin og svona lífrænar ábreiður uppfylla yfirleitt ekki kröfur um fegurð og snyrtileika. Þær hverfa því oft of snemma á vorin og plönturnar eiga það á hættu að lenda í skakkaföllum af völdum seinna vorfrosta. Fyrir byrjendur í bransanum getur verið snúið að finna út úr því hvenær er raunverulega óhætt að fara af stað með vorhreingerninguna.
Hvenær er ekki lengur hætta á því að frysti og plönturnar kali illa? Fátt er um svör við svona spurningum, nema menn hafi skyggnigáfu sem nýtist sérstaklega í veðurspám. Veðurfræðingar og veðurklúbbar um land allt hafa löngum reynt að finna út úr þessu vandamáli en stundum þarf maður bara að treysta á eigið hyggjuvit og þekkingu á plöntum. Viðkvæmar plöntur ættu að fá að vera í friði fram í miðjan maí, jafnvel aðeins lengur og þegar búið er að hreinsa ofan af þeim ættu ábreiður að vera til taks ef ske kynni að frysti, þrátt fyrir áreiðanlegar spár. Þeim má skutla yfir viðkvæmu plönturnar ef þörf krefur og taka þessar tilbúnu ábreiður þá að sér hlutverk lífrænu ábreiðanna að vissu leyti. Með því að breiða yfir plöntur þegar frystir á nóttunni á vorin er hægt að halda um 3 stiga hærri hita undir ábreiðunni en ella. Það er því mikið í húfi, eigi maður sérstaklega flottar og dýrmætar plöntur sem ekki mega lenda í frosti á vorin.
Áburðargjöf ættu menn ekki að stunda fyrr en brum plantna fara að springa aðeins út, þá fyrst fara plöntur að taka upp nitur (köfnunarefni) að einhverju marki. Fram að þeim tíma er hætta á að nitursamböndin í áburðinum skolist út í jarðveginum og nýtist því ekki plöntum en nitur er yfirleitt sá þáttur í umhverfinu sem er mest takmarkandi fyrir vöxt plantna. Fyrsta áburðargjöf er því yfirleitt ekki fyrr en eftir miðjan maí. Það er því alveg hægt að slappa aðeins af og safna kröftum fyrir sumarið, þetta reddast allt saman og engin ástæða til að æða út í garð alveg strax, nema kannski til að klippa runnana…
Guðríður Helgadóttir, forstöðumaður starfs- og endurmenntunardeildar LbhÍ
Orðið umhverfisáhrif vekur upp nettan hroll í huga mér og sennilega fleiri unnenda íslenskrar náttúru. Þetta orð er líka einatt notað í umræðu um álver, virkjanir eða aðrar stórkostlegar framkvæmdir sem breyta umhverfinu verulega, framkvæmdir sem oft á tíðum eru umdeildar og sýnist sitt hverjum um nauðsyn þeirra og mikilvægi. Orðið sjálft er hins vegar í eðli sínu hlutlaust og þegar maður nær úr sér hrollinum kemur í ljós að umhverfisáhrif eru af fjölbreyttum toga, jafnvel jákvæðum.
Umhverfi er sömuleiðis af mismunandi gerðum. Við getum talað um nærumhverfi sem er þá það umhverfi sem við lifum og hrærumst í á degi hverjum. Þarna getum við litið til vinnustaðar, heimilis eða garðs. Fjærumhverfi er þá umhverfi í stærra samhengi, það getur verið hverfið eða sveitarfélagið sem við búum í, sýslan eða landið allt. Það umhverfi sem hefur einna mest áhrif á daglegt líf okkar er auðvitað nærumhverfið. Áhersla okkar á nærumhverfi utandyra hefur vaxið jafnt og þétt síðustu áratugina. Sá einstaki þáttur sem hefur haft mest áhrif á líðan okkar utandyra er gróður. Með gróðrinum kemur skjólið og í skjólinu dafnar mannlífið. Þarna erum við að ræða um bein áhrif gróðurs á umhverfið, því hærri og þéttari sem gróðurinn er því líklegri er hann til að draga úr vindálagi. Ísland er talið fremur vindasamt og nú er svo komið að almennt er viðurkennt að skjólbelti úr plöntum séu af hinu góða. Stofnuð hafa verið félög um ræktun skjólbelta á stórum svæðum þannig að til verður skjólbeltanet sem dregur úr heildarvindáhrifum á viðkomandi svæði.
Áhrif gróðurs á umhverfi eru af fleiri gerðum. Sjónræn áhrif eru kannski þau augljósustu, það gleður augað að hafa fjölbreyttan gróður í umhverfi sínu og kappkosta menn við það að raða saman plöntum með mismunandi hæð, vaxtarlag, blómlit og blómgunartíma. Það er almennt viðurkennt að vel gróið land sé augnayndi. Gróður hefur hins vegar líka veruleg huglæg áhrif. Fólki líður einfaldlega betur innan um gróður en þar sem gróður er ekki til staðar. Niðurstöður ýmissa rannsókna benda til þess að gróður hafi jákvæð áhrif á andlega líðan sjúklinga og þar með einnig á líkamlega líðan því þar, eins og annars staðar, ber hugurinn mann hálfa leið, í þessu tilfelli í átt að bata.
Árið 1885, þegar Garðyrkjufélag Íslands var stofnað, hafa bjartsýnustu menn örugglega ekki þorað að vona að vinsældir ræktunar yrðu slíkar sem raun ber vitni. Ræktunartilraunir félaga Garðyrkjufélagsins hafa skilað ómældri þekkingu út í samfélagið, þekkingu sem hefur verið notuð til að breyta nærumhverfi einstaklinganna og um leið hafa sameiginleg áhrif alls þessa einstaklingsframtaks verið þau að heilu bæjarhverfin búa nú við skjól af gróðri. Garðyrkjufélag Ísland er því í raun umhverfissamtök því það vinnur að því að hafa áhrif á umhverfið og það hvernig við upplifum það. Skógrækt á Íslandi hefur óumdeilanlega haft veruleg áhrif á umhverfið. Nú er svo komið að sé farið út í skógrækt á landspildu sem er meira en 200 hektarar þarf að fara í mat á umhverfisáhrifum. Það er því óumdeilt að gróður hefur áhrif á umhverfið, í mínum huga eru þetta yfirleitt jákvæð áhrif og við félagar í Garðyrkjufélaginu megum vera stolt af okkar framlagi til umhverfismála á Íslandi.
Myndin er fengin úr kennslumyndinni „Sáning birkifræja“ eftir Stein Kárason https://vimeo.com/28150471
Að ala upp plöntur í eldhús- eða stofuglugga getur ekki talist besti kostur sem völ er á og hefur reynst mörgum erfitt. Ræktun í gróðurhúsi eða gróðurskála er mun auðveldari en krefst engu að síður natni. Margir ræktendur hafa ekki kost á að ala upp í gróðurskála eða gróðurhúsi en vilja engu síður spreyta sig við uppeldi trjáplantna og því ekki að reyna eldhúsgluggann?
Birkifræið
Birkifræið er að jafnaði þroskað um mánaðarmótin september – október og hangir fræið á plöntunum fram yfir miðjan október, jafnvel lengur ef tíð er góð. Safnið birkifræi af heilbrigðum trjám. Takið væna, heila rekla, ekki þá sem eru litlir eða afmyndaðir. Tínið frá blöð og stilka, sem slæðast kunna með, og þurrkið fræið við stofuhita í 3 – 4 daga t.d. í þunnum flekki á dagblaði. Þegar heilir reklar hrynja í sundur við átöku er fræið þurrt. Það má síðan geyma í bréfpoka, helst á köldum og þurrum stað. Birkifræið er örsmá hneta með allbreiðum væng og er allt að ein- og hálf milljón fræja í kílói. Algeng spírun er 50%, jafnvel minna. Fræið tapar spírunarhæfni í geymslu og því er vissara að nota ekki eldra fræ en 2.-3 ára.
Ef of miklu fræi er safnað, er tilvalið að deila með öðrum félögum, eða t.d. senda inn til fræbanka félagsins. Sjá nánar hér: https://gardurinn.is/sofnum-ollu-fraei/
Moldin
Sáðmold þarf að vera myldin og með hæfilegt magn næringarefna. Hægt er að kaupa tilbúna sáðmold í verslunum. Ekki er nauðsynlegt að sá í sérstaka sáðbakka, heldur má notast við nær hvaða ílát sem er, t.d. undan ís eða skyri, svo framarlega sem stungin eru göt í botninn og framræsla vatns tryggð. Bakkinn er fylltur upp með sáðmold þannig að nokkrir millimetrar eru upp að brún. Þjappað er létt á moldina. Ef það er gert of fast fer súrefni úr moldinni og spírun gengur verr, en ef moldin er óþjöppuð, eða ekki nægilega þjöppuð er hætta á að fræ liggi laus ofan á moldinni og nái síður tengslum við jarðveginn.
Sáning
Sáið um eða eftir miðjan maí. Fræinu er dreift sem jafnast yfir moldina og til þess að auðvelda jafna dreifingu má blanda hveitiklíði saman við, 2-3 sinnum magn birkifræsins. Hæfilegt er að gera ráð fyrir um 50 spíruðum fræjum í bakka sem er 20×30 sentimetrar að flatarmáli, en sú stærð hentar vel í venjulega gluggakistu. Sé spírunarhlutfall 50%, sem oft er hjá birki, má hæglega sá 100 fræjum í bakka af þeirri stærð en í einu grammi af birkifræi eru um 900 – 1400 fræ. Sé spírunarhlutfall hærra en 50 % er rétt að fækka sáðum fræjum sem því nemur.
Um 1-2 millimetra þykku lagi af vikri eða sandi er sáldrað yfir fræin, þannig að rétt sjáist í þau. Með þessu móti helst raki í moldinni og að fræinu, en raki er eitt af lykilatriðum til að spírun takist.
Merkja skal sáningu með upplýsingum um t.d. tegund, uppruna fræs og dagsetninu sáningar
Vökvað
Að svo búnu er moldin vökvuð og er best að vökva neðan frá í gegnum göt á sáðbakkanum. Ef vatni er hellt yfir bakkann, þéttist moldin og súrefni í henni minnkar, auk þess sem fræin geta skolast til ef ekki er farið varlega. Best er að leggja bakkann í vask eða bala með volgu vatni og láta hann standa þar í nokkrar mínútur, eða þar til sáldrið hefur dökknað.
Þá er sáðbakkanum komið fyrir í gluggakistu, helst í vesturglugga, og hvítt plast lagt yfir, en við það helst rakinn betur í moldinni. Gott að lofta um moldina einu sinni á dag og er þá plastið tekið af í nokkrar mínútur. Moldin má hvorki verða of þurr né blaut en vökvun krefst mikillar umhyggju og er eitthvert vandasamasta verkið í uppeldinu.
Fræið má aldrei þorna meðan á spírun stendur.
Árangur sést eftir nokkra daga
Birkifræ spírar eftir 10-15 daga við um 20 stiga hita. Þegar megnið af fræjunum hefur spírað er plastið tekið af bakkanum og þá fer birta að skipta plönturnar mestu máli. Þær teygja sig í átt að ljósi og því er mikilvægt að láta þær standa þar sem þær njóta góðrar birtu. Markmiðið er ekki að fá langar spírur, heldur þétta og laufgaða plöntu. Nýspíruð fræ mega ekki standa í sterku sólarljósi og er því nauðsynlegt að skyggja örlítið á viðkvæmar plöntur ef sáðbakki er staðsettur í suðurglugga. Það má gera t.d. með því að festa dagblað á glerið á glugganum og draga þannig úr mestu birtunni. Best er að plönturnar séu í vesturglugga ef kostur er.
Fljótlega eftir spírun myndast tvö lítil laufblöð, sem nefnd eru kímblöð. Í kjölfarið stækka smáplönturnar og laufblöðum fjölgar. Þá þarf að dreifplanta, til að auka vaxtarrými hverrar plöntu.
Vaxtarými aukið
Á þessu stigi má notast við venjulega, næringarríka gróðurmold. Notið stærri sáðbakka og fyllið hann næstum. Hafið þó borð á svo að vatn flæði ekki út við vökvun. Grafið litla holu í moldina, t. d. með teskeið. Síðan eru plönturnar teknar varlega upp úr sáðbakkanum og þeim komið fyrir, með gætni, í nýja pottinum. Gætið þess að rótarkerfið bögglist ekki við gróðursetningu. Það getur haft slæm áhrif fyrir vöxt og viðgang plöntunnar síðar meir. Bil á milli plantna í sáðbökkum er hæfilegt 5-6 sm. Einnig má nota litla blómapotta 4-6 sentímetra og er þá ein planta sett í hvern pott. Þörf fyrir birtu minnkar ekki en plönturnar hafa nú gott af ögn lægri hita ef mögulegt er. Annars geta þær orðið linar og þróttlitlar. Á þeim árstíma, þegar hætta á næturfrosti er liðin hjá, má fara að venja smáplönturnar við þær aðstæður sem þær munu búa við næstu árin. Ekki má gera það of hastarlega og er því gott að byrja á því að láta plöntunar út á daginn á skjólgóðan stað, nokkra tíma í senn. Tíminn er svo lengdur smám saman þar til plöntunar eru settar alveg út, en það getur tekið 1-2 vikur. Fyrstu nætunar úti getur verið æskilegt að hylja plönturnar með trefjadúk (akríldúk) eða plasti á skjólgóðum stað í garðinum. Plöntunar eru aldar upp, t.d. í vermireit, til næsta vors og jafnvel lengur, allt eftir stærð ræktunaríláts.
Samantekt: Auður Jónsdóttir. Kristinn H. Þorsteinsson
Rósaklúbbur Garðyrkjufélags Íslands var stofnaður 22. apríl 2002. Allir félagar Garðyrkjufélags Íslands geta gengið í Rósaklúbbinn. Hjón og sambýlisfólk geta haft sameiginlega aðild að klúbbnum. Félagsgjald er innifalið í félagsgjaldi Garðyrkjufélagsins. Í apríl 2024 voru 365 félagar skráðir í klúbbinn.
Heimasíða Rósaklúbbsins er í vinnslu og verður opnun síðunnar kynnt á vef GÍ.
Nú stendur yfir ljósmyndakeppni Rósaklúbbsins 2019. Skilafrestur á myndum til 31. október.
Aðeins skráðir félagar í Rósaklúbbnum geta tekið þátt en allir félagar í Garðyrkjufélagi íslands geta orðið félagar í Rósaklúbbnum. Það er hægt að nálgast upplýsingar og skrá sig í Rósaklúbbinn í gegnum netfangið: gardyrkjufelag@gardurinn.is
Það vill gleymast þegar fjallað er um kolefnasporið að sennilega eru heimagarðar landsmanna sá þáttur sem skilar hvað mestum ávinningi, ekki síður en skógrækt og landrækt. Grasrót garðyrkjunnar er í heimagörðum Íslendinga í öllum landshlutum enda nánast ekkert hús í landinu þar sem ekki er stunduð ræktun af einhverju tagi. Nægir í því sambandi að minna á að stærsti skógur landsins er í Reykjavík og þar á áhugafólk um garðyrkju stærstan þátt. Það er því frá mörgu að segja af þessum vettvangi. Nær daglegar fréttir og frásagnir samskiptamiðla sýna svo ekki verður um villst að margar nýjar og áhugaverðar hugmyndir eru í vinnslu í heimagörðum; frá þeim væri gaman að segja í Garðyrkjuritinu. Ekki síst væri gaman að heyra frá fólki sem ekki hefur skrifað í ritið áður – og hafið engar áhyggjur þótt þið teljið ykkur ekki skrifa “nógu vel” – við getum auðveldlega hjálpað til við að gera texta læsilegri. Við hvetjum alla félaga (og eins þá sem eiga eftir að gerast félagar!) að senda okkur áhugavert efni í Garðyrkjuritið, eina íslenska tímaritið sem helgað er garðyrkju, eigi síðar en 1. nóvember næstkomandi. Það voru ágætar heimtur á efni í rit yfirstandandi árs og við vonumst til að svo verði áfram.
Vinsamlega sendið efni ykkar – eða hugmyndir um efni – til Kristins fræðslustjóra Garðyrkjufélagsins á netfangið gardyrkjufelag@gardurinn.is
Aldingarður Æskunnar í Fjallabyggð var nýlega hleypt af stokkunum með gróðursetningu aldintrjáa við Trjálund norðan við bílaplanið Menntaskólans á Tröllaskaga.
Ómar Valdimarsson formaður Garðyrkjufélags Íslands, Kristinn H. Þorsteinsson, fræðslu- og verkefnisstjóri og Anna María Guðlaugsdóttir formaður Garyrkjufélags Tröllaskaga Norðurs voru viðstödd ásamt Gunnari Birgissyni bæjarstjóra Fjallabyggðar og aðstoðuðu starfsfólk leikskólans, nemendum, foreldrum og velunnurum verkefnisins við að gróðursetja ávaxtatré og áhugaverð berjayrki.
Hugmyndin með verkefninu felst í því að koma upp sérstökum trjáreitum með ávaxtatrjám og berjarunnum í náinni samvinnu við leikskólanemendur, foreldra, sveitarfélög og aðra velunnara. Eitt af hlutverkum Garðyrkjufélagsins er að leiða saman ólíkar kynslóðir og skapa skilyrði fyrir vaxandi ræktunarmenningu ungs fólks. Aldingarður Æskunnar er kjörinn vettvangur til þess. Áhugi almennings á hvers kyns ræktun hefur aukist. Hvað ræktunarskilyrði varðar hafa frumkvöðlar í ræktun, með bjartsýni og þolinmæði, sýnt að trén geta borið ávexti utanhúss hér á landi. Sæmundur Guðmundsson og Eyrún Óskarsdóttir á Hellu eru þau fyrstu sem hófu markvissa ræktun ávaxtatrjáa. Þau fluttu sín fyrstu tré inn árið 1994 og voru það eplatré og yrkin Transparent Blanche, Haugmann og Sävstaholm og fengu þessi yrki sinn sess í Fjallabyggð.
Árangur af ávaxtarækt getur tekið nokkur ár, en ef rétt er að staðið geta trén borið ávexti hér á landi utandyra. Með þeirri þekkingu sem Garðyrkjufélagið býr að verður spennandi að fylgjast með Aldingarði Æskunnar dafna en Jón Guðmundsson á Akranesi hefur verið félaginu mikilvægur ráðgjafi í verkefninu Aldingarður Æskunnar.