Posted on

Plöntuskiptadagur að vori

Laugardaginn 30. maí n.k. kl. 12–14 við Bókasafn Kópavogs

Plöntuskiptadagur að vori verður eins og undanfarin ár haldinn á svæðinu milli safnanna í Kópavogi, (Gerðarsafns, Salarins og Bókasafns Kópavogs).

Vissuð þið að flestar plöntur hressast verulega við reglulega skiptingu… því er kjörið að mæta með bút af hnaus til að skipta og fá annað í staðinn.
Takið litlu sjálfsánu plönturnar ykkar til hliðar og gefið þeim nýtt heimili með plöntuskiptum.

Allt er gjaldgengt, garðplöntur og stofuplöntur, trjáplöntur, fræ og græðlingar

 Skemmtilegast er svo garðyrkjuspjallið 😉

Posted on

Kartöflurnar eru væntanlegar!

Heil og sæl kæru félagar, nú er komið að því að panta kartöfluútsæði.

Útsæðið kemur eins og venjulega að norðan og verður opnað fyrir pantanir í vefverslun félagsins https://gardurinn.is/vefverslun/ kl. 17 þann 16. apríl.
Athugið að salan á útsæðinu fer einungis fram í gegnum vefverslun félagsins, það er ekki hægt að panta með tölvupósti eða símtölum.

Opið verður fyrir pantanir í eina viku, dagana 16. – 23. apríl.

Athugið að sumar tegundir eru í takmörkuðu magni og gildir reglan fyrstur kemur fyrstur fær.
Útsæðinu er pakkað í 500 gr. poka og hver og einn getur pantað einn poka af hverri tegund. Verðið er það sama og síðast, 600 kr. pokinn 😉

Tegundir og verð sem eru í boði þetta árið eru eftirfarandi:

  • Rússneskar frá Síberíu – Hvítar og fallegar, lengi verið ræktaðar í Eyjafirði.
  • (Uppseld) Ben Lomond – Ljósar, egglaga og góðar bökunarkartöflur.
  • Blálandsdrottningin – Hnöttóttar með djúp augu og ljóst, mjölmikið kjöt.
  • Kónga bláar – Bláar í gegn og fallegar.

Allar pantanir verður að sækja á skrifstofu félagsins, Síðumúla 1. Félagar fjarri höfuðborgarsvæðinu eru hvattir til að nýta sér ferðir vina og ættingja ef hægt er og því miður er ekki í boði að póstsenda útsæðið.

Sendur verður póstur á félagsmenn hvaða daga verður hægt að sækja pantanir og einnig verður tilkynning hérna á heimasíðunni.

Félagar sem hafa áhuga á að aðstoða við pökkun á útsæðinu eru hvattir til að senda póst á gardurinn@gardurinn.is, allar auka hendur vel þegnar.

Pökkun og afgreiðsla er líkleg til að fara fram síðustu helgina í apríl.

Bestu kveðjur,
Hvannir, matjurtaklúbbur GÍ

Posted on

Kartöfluspjall með Dagnýju Hermanns

Fræðsluerindi verður miðvikudaginn 25. mars kl. 19:30 í sal Garðyrkjufélagsins Síðumúla 1 (gengið inn frá Ármúla).
Dagný ætlar að spjalla um fegurðina í kartöflum, hvernig við sem áhugafólk getum leikið okkur að því að auka fjölbreytileika í kartöflugörðunum okkar og hversu einfalt það er í raun að rækta ný yrki af bótanisku fræi.

Fundurinn er öllum opinn og á boðstólum verður kaffi/te og eitthvað smálegt með.

Viðburðinum verður streymt og er slóðin:
https://us06web.zoom.us/j/83413761106?pwd=yIpwlnzfnpLvoQ9qcqERco9O4bv4v5.1

Hvannir, matjurtaklúbbur

Posted on

Fræbanki Garðyrkjufélagsins opnar 15. febrúar

Nú geta félagar í GÍ, sem hyggja á ræktun plantna af fræi glaðst, því við byrjum að afgreiða fræ úr Fræbankanum frá og með næsta sunnudegi.

Nýjum félögum og þeim sem ekki hafa pantað fræ áður má benda á að mjög auðvelt er að panta fræ. Það er einfaldlega gert með því að opna flipann Vefverslun hér á opnunarsíðunni og skoða frælistann sem þar er og fylla út pöntun og greiða hana.

Nú er það svo að sérhver frætegund sem berst til okkar fær sitt eigið númer og heldur því þó svo að birgðirnar af einhverjum þeirra klárist. Talsverð vinna felst í að skrá upplýsingar um hverja plöntutegund í fræsafninu okkar og því er öllum skráningum haldið, því að alltaf má vonast eftir að þær tegundir sem klárast berist aftur frá frægefendum. Það er mikið ánægjuefni finnst okkur í frænefndinni að nú á þessu ári bættist t.d. við talsverður fjöldi frætegunda sem verið hefur uppseldur um einhvern tíma og eiga þessir duglegu fræsafnarar félagsins góðar þakkir skilið fyrir dugnað þeirra og stuðning við félagið.

Athygli þeirra sem ætla að panta fræ er vakin á reglum varðandi vefverslunina sem er að finna á sama stað og frælistann. Þeirra helst að hámarksfjöldi frætegunda í hverri pöntun eru 30 tegundir og hægt er að panta fræ til 1. Júní.

Bestu óskir um gott ræktunarár
Frænefndin

Posted on

Garðyrkjuspjall og kaffi

Salur Garðyrkjufélagsins, Síðumúla 1 (gengið inn frá Ármúla)
Þriðjudaginn 20.janúar
Klukkan 19:30

Við ætlum að byrja þetta dásemdar ár á huggulegu garðyrkjuspjalli með Gurrý okkar og auðvitað mun hún baka “meter af marengs” fyrir kvöldið🎂 Við ætlum að láta okkur dreyma um vorið og ræða hvaða spennandi viðfangsefni við ætlum að reyna í garðinum þetta árið ☺️ Einnig munum við skerpa á áherslum og hugmyndum fyrir viðburði framundan. Hjálpið okkur að búa til fjölbreytta viðburðardagskrá! Hittumst kæru félagar og eigum ljúfa stund saman!

Posted on

Síðasti afgreiðsludagur hvítlauks

Eitthvað er enn ósótt af hvítlaukspöntunum. Opið verður fyrir afhendingu mánudaginn 13. okt. nk. frá 16:30-19:00 í húsnæði Garðyrkjufélagsins, Síðumúla 1 (gengið inn frá Ármúla). Við hvetjum fólk til að draga ekki lengur að sækja hvítlaukinn. Skrifstofa GÍ er opin á miðvikudögum frá 10-14.
Mögulegt er að senda þeim sem þess óska laukinn í pósti, en þá verður viðkomandi að greiða póstburðargjaldið.

Eitthvað er enn til af flestum tegundum og verður það selt í lausasölu á afgreiðslutímum.

Posted on

Afmælismálþing 2. október 2025

Garðyrkjufélag Íslands 140 ára
1885-2025

Afmælismálþingið er haldið í Fróða, sal Íslenskrar erfðagreiningar að Sturlugötu 8 í Reykjavík og hefst kl. 13.

13:00 – 13:10  Inngangur og afmælisþankar – Guðríður Helgadóttir, formaður GÍ

13:10 – 13:40  Lýðheilsa og gróður – Dóra Guðrún Guðmundsdóttir, sviðstjóri lýðheilsu hjá Landlæknisembættinu

13:40 – 14:20  Trjágróður í þéttbýli – Aaron Shearer, sérfræðingur hjá Landi og skógi

14:20 – 14:50  Merk tré – Auður Elva Kjartansdóttir, framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Reykjavíkur

14:50 – 15:20  Kaffihlé

15:20 –  15:50  Sveitarfélag með grænum augum –  Friðrik Baldursson, garðyrkjustjóri Kópavogs

15:50 – 16:30  Making our communities greener and healthier with the 3+30+300 principle – Hvernig gerum við samfélagið okkar grænna og heilsusamlegra með 3-30-300 leiðinni – Dr. Cecil Konijnendijk, sérfræðingur í borgarskógrækt og grænum svæðum

16:30 – 17:00  Umræður

Fundarstjóri: Björgvin Örn Eggertsson, Garðyrkjuskólanum á Reykjum

Málþingið fer fram á íslensku og ensku og er öllum opið meðan húsrúm leyfir.

Posted on

Kveðja frá Frænefnd

Kæru félagar, vonandi áttuð þið öll blómlegt og gott sumar.

Fræbanki Garðyrkufélagsins opnar aftur eftir sumarfrí 1. september n.k. og í tilefni af því langar okkur í frænefndinni að minna ykkur á að huga að fræsöfnun í ykkar nærumhverfi. Fræbankinn stendur og fellur með frægjöfum frá félögum. Án ykkar framlags væri enginn fræbanki.

Kær kveðja

Bergljót Kristinsdóttir
Kristín Hallgrímsdóttir
Sólveig Aðalsteinsdóttir