Aquilegia flabellata – Blævatnsberi
250kr.
Fjölær. Hæð allt að 35 cm. Blómgun lok maí og framundir lok júní. Blóm tvílit blá og hvít. Þrífst í hálfskugga eða sól í frjóum, rökum jarðvegi en vel framræstum. Þolir illa flutning. Hentar í steinbeð og kanta. Fræi sáð við 20° C. Fræ spírar yfirleitt á 2-6 vikum. Vatnsberar eru almennt harðgerðir og blómviljugir en blómstra ekki á fyrsta ári. Vatnsberar geta sáð sér talsvert og sé þess ekki óskað er ráðlegt að klippa blómstöngla af að blómgun lokinni. Vatnsberi/Sporasóley frjóvgast með opinni frjóvgun og getur því víxlfrjóvgast við aðrar vatnsberategundir.