Aquilegia formosa – Glóðarvatnsberi

250kr.

Fjölær. Hæð allt að 95 cm. Blómgun lok maí og út júní. Blóm tvílit rauð og gul frekar smá, stuttir sporar. Þrífs best í sól eða hálfskugga í léttum vel framræstum jarðvegi. Hérlendis aðallega ræktaður í grasagörðum. Fræi sáð við15-20° C og hulið lauslega. Spírun fræs getur tekið nokkra mánuði. Vatnsberar eru almennt harðgerðir og blómviljugir en blómstra ekki á fyrsta ári. Vatnsberar geta sáð sér talsvert og sé þess ekki óskað er ráðlegt að klippa blómstöngla af að blómgun lokinni. Vatnsberi/Sporasóley frjóvgast með opinni frjóvgun og getur því víxlfrjóvgast við aðrar vatnsberategundir.

Á lager

Fræ af yrkjum er yfirleitt ekki einsleitt. Það getur blandast milli yrkja og jafnvel milli tegunda sömu ættkvíslar. Þetta á t.d. við um vatnsbera, blágresi, ávaxtayrki, yrki af japanshlyn, rósir og aðrar mikið kynbættar plöntur."

Vinsamlegast athugið að 700 kr. umsýslugjald leggst á hverja fræpöntun.

Vörunúmer (SKU): FRÆ 0647 Flokkar: , , Tags: ,