Vefverslunin verður lokuð til 1. september 2024.

Aquilegia vulgaris ‘Melton Rapids’ – Skógarvatnsberi ‘Melton Rapids’

250kr.

Fjölær. Hæð 50-70 cm. Blómgun júní-júlí. Blómlitur blár/vínrauður. Þrífst best í vel framræstri léttri rakaheldinni garðamold í sól eða hálfskugga. Fræi sáð við lágt hitastig og hulið lauslega. Spírnun fræs getur tekið nokkra mánuði. Vatnsberar eru almennt harðgerðir og blómviljugir en blómstra ekki á fyrsta ári. Vatnsberar geta sáð sér talsvert og sé þess ekki óskað er ráðlegt að klippa blómstöngla af að blómgun lokinni. Vatnsberi/Sporasóley frjóvgast með opinni frjóvgun og getur því víxlfrjóvgast við aðrar vatnsberategundir.

Fræ af yrkjum er yfirleitt ekki einsleitt. Það getur blandast milli yrkja og jafnvel milli tegunda sömu ættkvíslar. Þetta á t.d. við um vatnsbera, blágresi, ávaxtayrki, yrki af japanshlyn, rósir og aðrar mikið kynbættar plöntur."

Vinsamlegast athugið að 700 kr. umsýslugjald leggst á hverja fræpöntun.

Vörunúmer (SKU): FRÆ 0434 Flokkar: , , Tags: ,