Vefverslunin verður lokuð til 1. september 2024.

Aquilegia x hybrida red and yellow-Garðavatnsberi rauður og gulur

250kr.

Fjölær. Hæð 50-80 cm. Blóm tvílit rauð og gul með langa spora í júlí-ágúst. Þrífst í léttri frjórri garðamol rakaheldinni en vel framræstri í sól. Fræi sáð við 20° C. Fræ spírar á nokkrum mánuðum. Vatnsberar eru almennt harðgerðir og blómviljugir en blómstra ekki á fyrsta ári. Vatnsberar geta sáð sér talsvert og sé þess ekki óskað er ráðlegt að klippa blómstöngla af að blómgun lokinni. Vatnsberi/Sporasóley frjóvgast með opinni frjóvgun og getur því víxlfrjóvgast við aðrar vatnsberategundir. Ranunculaceae/Sóleyjaætt. Plöntur af sóeyjaætt eru allar að einhverju leyti eitraðar en mis mikið.

Fræ af yrkjum er yfirleitt ekki einsleitt. Það getur blandast milli yrkja og jafnvel milli tegunda sömu ættkvíslar. Þetta á t.d. við um vatnsbera, blágresi, ávaxtayrki, yrki af japanshlyn, rósir og aðrar mikið kynbættar plöntur."

Vinsamlegast athugið að 700 kr. umsýslugjald leggst á hverja fræpöntun.

Vörunúmer (SKU): FRÆ 0506 Flokkar: , , Tags: ,