Vefverslunin verður lokuð til 1. september 2024.

Aquilegia glandulosa – Stjörnuvatnsberi

250kr.

Fjölær. Um 30-50 cm há tegund með lítil og fínleg blöð og upprétta beina blómstöngla. Blómin eru stór, tvílit blá og hvít, stundum aðeins lútandi, með stutta krókbogna spora. Blómstrar í júní. Þrífst í frekar rakaheldnum jarðvegi en vel framræstum í sól eða háfskugga. Fræi sáð við lágt hitastig. Spírun óregluleg og getur tekið nokkra mánuði. Vatnsberar eru almennt harðgerðir og blómviljugir en blómstra ekki á fyrsta ári. Vatnsberi/Sporasóley frjóvgast með opinni frjóvgun og getur því víxlfrjóvgast við aðrar vatnsberategundir.

Fræ af yrkjum er yfirleitt ekki einsleitt. Það getur blandast milli yrkja og jafnvel milli tegunda sömu ættkvíslar. Þetta á t.d. við um vatnsbera, blágresi, ávaxtayrki, yrki af japanshlyn, rósir og aðrar mikið kynbættar plöntur."

Vinsamlegast athugið að 700 kr. umsýslugjald leggst á hverja fræpöntun.

Vörunúmer (SKU): FRÆ 0455 Flokkar: , , Tags: ,