Aquilegia flabellata var. pumila f. kurilensis rosea – Blævatsberi

250kr.

Fjölær. Hæð um 20-25 cm. Blóm tvílit fjólublá og gul í júní. Þrífst í sól og frjórri léttri vel framræstri en rakahldinni garðamold. Fræi sáð við 15-20° C og hulið lauslega. Spírun getur tekið nokkra mánuði. Vatnsberar eru almennt harðgerðir og blómviljugir en blómstra ekki á fyrsta ári. Vatnsberar geta sáð sér talsvert og sé þess ekki óskað er ráðlegt að klippa blómstöngla af að blómgun lokinni. Vatnsberi/Sporasóley frjóvgast með opinni frjóvgun og getur því víxlfrjóvgast við aðrar vatnsberategundir. Ranunculaceae/ Sóleyjaætt. Plöntur af sóeyjaætt eru allar að einhverju leyti eitraðar en mis mikið.

Ekki til á lager

Fræ af yrkjum er yfirleitt ekki einsleitt. Það getur blandast milli yrkja og jafnvel milli tegunda sömu ættkvíslar. Þetta á t.d. við um vatnsbera, blágresi, ávaxtayrki, yrki af japanshlyn, rósir og aðrar mikið kynbættar plöntur."

Vinsamlegast athugið að 700 kr. umsýslugjald leggst á hverja fræpöntun.

Vörunúmer: FRÆ 0437 Flokkar: , , Merkimiðar: ,