Vefverslunin verður lokuð til 1. september 2024.

Aquilegia vulgaris ‘Woodside Varigated’ – Skógarvatnsberi ‘Woodside Varigated’

250kr.

Fjölær. Allt að 70 cm á hæð.  Vatnsberi ‘Woodside Varigated’ er með ljósbleik fyllt blóm og tvílit lauf grænt og gult/hvítt.  Þrífst best í venjulegri garðamold vel framræstri. Fræi sáð við lágt hitastig. Spírun getur tekið nokkra mánuði. Vatnsberar eru almennt harðgerðir og blómviljugir en blómstra ekki á fyrsta ári. Vatnsberar geta sáð sér talsvert og sé þess ekki óskað er ráðlegt að klippa blómstöngla af að blómgun lokinni. Vatnsberi/Sporasóley frjóvgast með opinni frjóvgun og getur því víxlfrjóvgast við aðrar vatnsberategundir.

Fræ af yrkjum er yfirleitt ekki einsleitt. Það getur blandast milli yrkja og jafnvel milli tegunda sömu ættkvíslar. Þetta á t.d. við um vatnsbera, blágresi, ávaxtayrki, yrki af japanshlyn, rósir og aðrar mikið kynbættar plöntur."

Vinsamlegast athugið að 700 kr. umsýslugjald leggst á hverja fræpöntun.

Vörunúmer (SKU): FRÆ 0450 Flokkar: , , Tags: ,