Aquilegia coerulea ‘Rosa Semiplena’ – Indíánavatnsberi ‘Rosa Semiplena
250kr.
Fjölær. Hæð 60-80 cm. Blómgun júní-júlí. Blandaðir blómlitir. Þrífst best í sól eða hálfskugga og venjulegri garðamold léttri rakaheldinni en vel framræstri. Fræi sáð við 20° C. Spírun óregluleg allt að nokkrum mánuðum. Vatnsberar eru almennt harðgerðir og blómviljugir en blómstra ekki á fyrsta ári. Sumir vatnsberar geta sáð sér talsvert og sé þess ekki óskað er ráðlegt að klippa blómstöngla af að blómgun lokinni. Vatnsberi/Sporasóley frjóvgast með opinni frjóvgun og getur því víxlfrjóvgast við aðrar vatnsberategundir.