Vefverslunin verður lokuð til 1. september 2024.

Aquilegia coerulea ‘Red Hobbit’ – Indíánavatnsberi ‘Red Hobbit’

250kr.

Fjölær. Hæð allt að 45 cm. Blómgun frá miðjum júní og fram í ágúst. Blóm tvílit rauð og hvít, langir sporar. Þrífst best í vel framræstri  garðamold í sól eða hálfskugga. Fræi sáð við 20° C. Fræ spírar yfirleitt á 2-3 vikum en getur tekið lengri tíma. Vatnsberar eru almennt harðgerðir og blómviljugir en blómstra ekki á fyrsta ári. Vatnsberi/Sporasóley frjóvgast með opinni frjóvgun og getur því víxlfrjóvgast við aðrar vatnsberategundir.

Fræ af yrkjum er yfirleitt ekki einsleitt. Það getur blandast milli yrkja og jafnvel milli tegunda sömu ættkvíslar. Þetta á t.d. við um vatnsbera, blágresi, ávaxtayrki, yrki af japanshlyn, rósir og aðrar mikið kynbættar plöntur."

Vinsamlegast athugið að 700 kr. umsýslugjald leggst á hverja fræpöntun.

Vörunúmer (SKU): FRÆ 0449 Flokkar: , , Tags: ,