Aðalfundur Garðyrkjufélags Íslands 2021 verður haldinn mánudaginn 26. apríl næstkomandi í húsi félagsins að Síðumúla 1 í Reykjavík. Að sjálfsögðu verður ávallt miðað við þær sóttvarnarreglur sem þá verða í gildi og er þetta því birt með fyrirvara um þær.
Fundurinn hefst kl. 19:30.
Dagskrá: venjuleg aðalfundarstörf; lagabreytingar; stefnumótun.
Félagsmenn eru hvattir til að gefa kost á sér til trúnaðarstarfa fyrir félagið á
aðalfundinum eða fyrir hann.
Nánar auglýst síðar.
Stjórn GÍ