Fimmtudaginn 16. apríl kl. 19:30 í sal Garðyrkjufélags Íslands, Síðumúla 1 (gengið inn frá Ármúla).
Dagný Guðmundsdóttir á Skyggnissteini segir frá hvernig hún uppsker og nýtir allt árið bæði það sem hún ræktar og það sem vex villt.
Þau hjónin rækta eftir hugmyndum vistræktar.
Vistrækt(permaculture) er heildrænt ræktunar- og hönnunarkerfi sem líkir eftir náttúrunni með sjálfbærni að markmiði. Í því felst m.a. matvælaframleiðsla sem vinnur með náttúrulegu umhverfi.
Viðburðinum verður streymt og er slóðin: https://us06web.zoom.us/j/89455189044?pwd=4L1Bwy2fbUzaqZeombRgpBZfVNZWjZ.1