Aquilegia coerulea ‘Red Hobbit’ – Indíánavatnsberi ‘Red Hobbit’
250kr.
Fjölær. Hæð allt að 45 cm. Blómgun frá miðjum júní og fram í ágúst. Blóm tvílit rauð og hvít, langir sporar. Þrífst best í vel framræstri garðamold í sól eða hálfskugga. Fræi sáð við 20° C. Fræ spírar yfirleitt á 2-3 vikum en getur tekið lengri tíma. Vatnsberar eru almennt harðgerðir og blómviljugir en blómstra ekki á fyrsta ári. Vatnsberi/Sporasóley frjóvgast með opinni frjóvgun og getur því víxlfrjóvgast við aðrar vatnsberategundir.