Posted on

Næstu heilsubótar- og fræðslugöngur

Kæru félagar!

Heilsubótar- og fræðslugöngum félagsins í tilefni af 140 ára afmæli þess í ár hefur verið vel tekið og nú er komið að næstu göngum. 

Þrjár göngur verða þriðjudaginn 1. júlí. Þær eru:

Selfoss Örn Óskarsson, fv. formaður Skógræktarfélags Selfoss, leiðir göngu um Hellisskóg, útivistarperlu Selfyssinga og nærsveitafólks. Mæting er við bílastæðið við Hellisskóg kl. 17.

ReykjavíkÞórólfur Jónsson, garðyrkjustjóri Reykjavíkur stýrir göngu um Grundargerðisgarðinn í Smáíbúðahverfinu í Reykjavík. Best er að koma að garðinum frá Grundargerði en mæting er í garðinum sjálfum. Gangan hefst kl. 17.

Húsavík Jan Klitgaard, þjóðfræðingur og garðyrkjumaður, leiðir göngu um Garðarslund. Mæting er syðst í götunni Skálabrekku og þessi ganga hefst kl. 20. 

Hver ganga tekur um klukkustund og eru þær öllum opnar.

Bestu kveðjur frá Garðyrkjufélaginu 🙂