Aðalfundur Garðyrkjufélags Íslands verður haldinn miðvikudaginn 8. apríl nk. kl. 19:30 í sal félagsins að Síðumúla 1.
Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt lögum félagsins.
Stjórnarliðar sem gefa kost á sér áfram í stjórn til næstu tveggja ára.
· Guðríður Helgadóttir, formaður
· Vilhjálmur Í. Sigurjónsson
· Sigurbjörn Einarsson
· Hulda Guðmundsdóttir
Ekki hafa borist aðrar tilnefningar til stjórnarsetu.
Stjórnarliðar sem voru kosnir til tveggja ára á síðasta aðalfundi og sitja áfram í stjórn.
· Hjördís Rögn Baldursdóttir varaformaður
· Björn Ingi Stefánsson
· Íris Stefánsdóttir
Að loknum aðalfundarstörfum verður erindi:
Kristinn Þorsteinsson framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Kópavogs og fv. formaður Garðyrkjufélags Íslands fjallar um eldsvoðann við Guðmundarlund á sl. ári.
Streymt verður frá fundinum en allir sem eiga þess kost eru hvattir til að mæta.
Stjórn GÍ