Posted on

Önnur garðaskoðun sumarsins 2026

Þriðjudaginn 30. júní (mögulega miðvikudaginn 1. júlí) kl. 16-18:30 býður Anna Pálsdóttir félögum í Garðyrkjufélagi Íslands að leggja land undir fót og skoða ræktun Snæbjarnar Jónassonar í Kjósinni.

Snæbjörn ræktaði þar mikið af lyngrósum sem eru nú í fullum blóma og stórglæsilegar, auk fjölda annarra skemmtilegra tegunda trjáa og runna. Ræktunarsvæði Snæbjarnar er staðsett við Fremri-Fossá, svæðið er fyrir neðan veg rétt fyrir innan Kiðafell í Kjós og hliðið verður opið.

Best er að skilja bílana eftir uppi við hliðið (nema fólk eigi erfitt um gang) og ganga niður að svæðinu. Það er stuttur spölur, aflíðandi brekka niður að ánni, 5-10 mínútna gangur frá hliðinu (fer eftir gönguhraða). Á leiðinni er mögulega hægt að skoða nokkrar tegundir plantna.

Anna verður á staðnum og það er opið hús (opinn garður) milli kl. 16-18:30. Það skýrist nánar fyrir helgina hvor dagurinn verður fyrir valinu, veðurspáin þarf að vera hagstæð.

Hver og einn þarf sjálfur að sjá um að koma sér á staðinn og að sjálfsögðu hvetjum við fólk til að sameinast í bíla.

Kær kveðja, stjórn GÍ