Sumarferðin 2026

11.000kr.

Á lager

Vörunúmer: Sumarf26 Flokkur: Merkimiði: ,

Lýsing

Hin árlega sumarferð Garðyrkjufélags Íslands verður farin mánudaginn 13. júlí næstkomandi.
Lagt verður af stað kl. 8:30 frá Árbæjarsafni (í rútu) og ekið sem leið liggur austur á bóginn, á Suðurland.
Dagskráin er enn í vinnslu en ramminn kemur fram hér fyrir neðan og fararstjóri verður Guðríður Helgadóttir.
Hver og einn greiðir kr. 11.000 fyrir ferðina (rúta, hádegisverður og hressing innifalin).
Síðustu ár hefur verið uppselt í ferðina og gildir hér hið fornkveðna, fyrstur kemur, fyrstur fær.

Mæting á bílastæðið við Árbæjarsafn

8:30   Lagt af stað austur á bóginn
9:00   Bugar í Ölfusi – Aðalsteinn Sigurgeirsson
11:00 Reykjabraut 19, Þorlákshöfn – Ágústa Ragnarsdóttir
12:30 Hádegisverður í Rauða Húsinu á Eyrarbakka (matarmikil kjúklingasúpa, grænt salat og frönsk súkkulaðikaka í eftirrétt)
13:30-15:30 þessi hluti dagskrár er enn í vinnslu..
15:30 Garður Ingibjargar Sigmundsdóttur í Hveragerði (?)
16:30 Garðyrkjustöðin Flóra í Hveragerði

Áætluð heimkoma um kl. 18.