Potentilla nitida – Glitmura

250kr.

Dvergvaxin, fjölær jurt sem verður aðeins um 5 cm á hæð. Myndar með tímanum þéttar breiður. Blómgast í júlí, ágúst. Blómin eru bleik en dekkri í blómbotninn. Til eru hvítblómstrandi einstaklingar. Þrífst best í fremur þurrum, vel framræstum, rýrum jarðvegi. Hentar vel í steinhæðir og einnig sem þekjujurt í beðkanta. Blómstrar meira sunnan heiða en norðan.

Á lager

Fræ af yrkjum er yfirleitt ekki einsleitt. Það getur blandast milli yrkja og jafnvel milli tegunda sömu ættkvíslar. Þetta á t.d. við um vatnsbera, blágresi, ávaxtayrki, yrki af japanshlyn, rósir og aðrar mikið kynbættar plöntur."

Vinsamlegast athugið að 700 kr. umsýslugjald leggst á hverja fræpöntun.

Vörunúmer (SKU): FRÆ 0228 Flokkar: , Tag: