Vefverslunin verður lokuð til 15. febrúar 2024.
Pinus contorta var. latifolia – Stafafura
250kr.
Sígrænt hávaxið og fremur hraðvaxta barrtré. Innlandskvæmi stafafurunnar og hentar því betur fjærri sjó. Verður hærri og grennri en strandkvæmið sem er meira ræktað. Þrífst best í vel framræstum jarðvegi, er þolin í rýrum jarðvegi en vex þá hægar. Hentar í skógrækt, í þyrpingar eða sem stakstætt tré.