Nicandra physaloides – Eplabikar

250kr.

Meðalharðgert sumarblóm af náttskuggaætt, sem blómstrar fallegum daufbláum blómklukkum og oft ræktað til skrauts. Fræhylkin sem myndast eftir frjóvgun eru einnig nokkuð skrautleg. Kýs nokkuð sólríkan stað í vel framræstri, rakri, frjórri mold. Getur blómstrað fram á haust, en hvert blóm er skammlíft. Plantan er ýmist sögð æt eða eitruð og til eru rannsóknir sem sýna ýmist eitrun og ekki eitrun. Í öllu falli skynsamlegt að umgangast fegurðina af varúð og skynsemi, líkt og flest af náttskuggaætt. Hæð:100-150cm

Á lager

Fræ af yrkjum er yfirleitt ekki einsleitt. Það getur blandast milli yrkja og jafnvel milli tegunda sömu ættkvíslar. Þetta á t.d. við um vatnsbera, blágresi, ávaxtayrki, yrki af japanshlyn, rósir og aðrar mikið kynbættar plöntur."

Vinsamlegast athugið að 700 kr. umsýslugjald leggst á hverja fræpöntun.

Vörunúmer (SKU): FRÆ 0354 Flokkar: ,

Viðbótar upplýsingar

Stærð