
Larix X marschlinsii – Sifjalerki
250kr.
Sifjalerki lendir í töluverðu haustkali, en þolir það ágætlega og verður því einna mesta „skúlptúrplantan“ af lerki tegundum. Vex nokkuð hratt. Einnig þekkt undir gamla nafninu Larix x eurolepis.
Lerkifræ skal bara hylja með þunnu lagi af jarðvegi, en athugið að spírun á lerkifræi er oft léleg og því mælt með að sá mjög þétt. Lerkifræ þurfa vanalega kaldörvun og því óvitlaust að sá fræjunum í potta/bakka sem standa úti yfir vetur.
Ekki til á lager
Fræ af yrkjum er yfirleitt ekki einsleitt. Það getur blandast milli yrkja og jafnvel milli tegunda sömu ættkvíslar. Þetta á t.d. við um vatnsbera, blágresi, ávaxtayrki, yrki af japanshlyn, rósir og aðrar mikið kynbættar plöntur."
Vinsamlegast athugið að 700 kr. umsýslugjald leggst á hverja fræpöntun.
Vörunúmer: FRÆ 0683 Flokkar: Barrtré, Fræ (Ath. Hámarksfjöldi er 30 tegundir í pöntun), Tré og runnar Merkimiði: Tré