
Larix X marschlinsii – Sifjalerki
200kr.
Sifjalerki lendir í töluverðu haustkali, en þolir það ágætlega og verður því einna mesta “skúlptúrplantan” af lerki tegundum. Vex nokkuð hratt. Einnig þekkt undir gamla nafninu Larix x eurolepis.
Lerkifræ skal bara hylja með þunnu lagi af jarðvegi, en athugið að spírun á lerkifræi er oft léleg og því mælt með að sá mjög þétt. Lerkifræ þurfa vanalega kaldörvun og því óvitlaust að sá fræjunum í potta/bakka sem standa úti yfir vetur.
Á lager