Incarvillea compacta – Tibetglóð
250kr.
Fjölær jurt allt að 30 cm há. Blómin eru stór fölpurpuralit/dökk bleik utan með gulri miðju og hvítu mynstri, blóm jaðrar sléttir. Blómgast í júlí /ágúst. Þrífst best í sól og næringarríkum jarðvegi mjög vel framræstum. Fræ spírar við 15-20° C, fræ hulið með mjög þunnu lagi af sáðmold. Ef fræ hefur ekki spírað eftir 20-30 daga má reyna kuldameðferð.