Eryngium alpinum – Alpaþyrnir

250kr.

Fjölær, 60-100 cm, blá, blómgast júlí-ágúst. Getur verið skammlíf í potti.

Athugið að fyrsta sumarið er bara blaðvöxtur, annað sumarið er breytilegt hvort er blaðvöxtur, smávaxin blóm eða komin á fullt.

Þarf kaldörvun og því oft best að setja í pott sem er úti yfir hluta vetrar. Ef fræ spíra ekki er oft ráð að láta þau vera úti fram á vorið eftir.

Hyljið einungis með þunnu lagi af mold/sandi.

Á lager

Fræ af yrkjum er yfirleitt ekki einsleitt. Það getur blandast milli yrkja og jafnvel milli tegunda sömu ættkvíslar. Þetta á t.d. við um vatnsbera, blágresi, ávaxtayrki, yrki af japanshlyn, rósir og aðrar mikið kynbættar plöntur."

Vinsamlegast athugið að 700 kr. umsýslugjald leggst á hverja fræpöntun.

Vörunúmer (SKU): FRÆ 0104 Flokkar: , Tags: ,