Við biðjumst innilegrar afsökunar, en það er ekki hægt að kaupa þessa vöru.
Dicentra eximia – Álfahjarta
250kr.
Fallegur hjartablómstrandi fjölæringur með bleik eða fjólubleik blóm frá miðju sumri og fram á haust. Kýs frjóan jarðveg, rakaheldinn án þess þó að vera alltaf blautur, í sól eða hálfskugga. Myndar hægt og rólega breiður. Hæð algeng á bilinu 30-60cm.
Fræ af yrkjum er yfirleitt ekki einsleitt. Það getur blandast milli yrkja og jafnvel milli tegunda sömu ættkvíslar. Þetta á t.d. við um vatnsbera, blágresi, ávaxtayrki, yrki af japanshlyn, rósir og aðrar mikið kynbættar plöntur."
Vinsamlegast athugið að 700 kr. umsýslugjald leggst á hverja fræpöntun.