Delphinium Pacific Hybr. ‘King Arthur’ Premium op – Riddaraspori ‘King Arthur’
250kr.
Fjölær. Hæð allt að 160 cm. Blóm hálffyllt dökkfjólublá með hvítri miðju í júlí-ágúst. Þrífst í sól eða hálfskugga í næringarríkri en vel rakaheldri framræstri garðamold, nýtur góðs af húsdýraáburði að hausti og fljótandi áburði að sumri. Hefur nokkuð svera stilka miðað við aðra riddaraspora en þarf samt stuðning og skjólgóðan stað. Riddaraspori er breytileg tegund af sóleyjarætt. Planta og fræ eru eitruð.

Vörunúmer: FRÆ 0202
Vörunúmer: FRÆ 0369
Vörunúmer: FRÆ 0206