Vefverslunin verður lokuð til 1. september 2024.
![Awaiting product image](https://gardurinn.is/wp-content/uploads/woocommerce-placeholder-600x600.png)
Campanula moesiaca – Serbaklukka
250kr.
Tvíær. Blómstrar síðsumars á seinna ári og deyr svo. Blómstöngull með klukkublómum, 30-60cm hár. Blómlitur hvítur, lillablár eða tónar þar á milli. Kýs vel framræstan jarðveg í sól eða hálfskugga og hentar því vel í steinhæð. Minnir nokkuð á höfuðklukku, en er ekki fjölær eins og hún.