Vefverslunin verður lokuð til 1. september 2024.

Aquilegia x hybrida – Garðavatnsberi, blandaðir litir

250kr.

Fjölær. Hæð 60-80 cm. Blómgun júní-júlí. Blandaðir blómlitir. Þrífst best í sól eða hálfskugga og venjulegri garðamold léttri rakaheldinni en vel framræstri. Fræi sáð við 20° C. Spírun óregluleg allt að nokkrum mánuðum. Vatnsberar eru almennt harðgerðir og blómviljugir en blómstra ekki á fyrsta ári. Vatnsberar geta sáð sér talsvert og sé þess ekki óskað er ráðlegt að klippa blómstöngla af að blómgun lokinni.  Vatnsberi/Sporasóley frjóvgast með opinni frjóvgun og getur því víxlfrjóvgast við aðrar vatnsberategundir. Sóleyjaætt/Ranunculaceae. Plöntur af sóeyjaætt eru allar að einhverju leyti eitraðar en mis mikið.

Fræ af yrkjum er yfirleitt ekki einsleitt. Það getur blandast milli yrkja og jafnvel milli tegunda sömu ættkvíslar. Þetta á t.d. við um vatnsbera, blágresi, ávaxtayrki, yrki af japanshlyn, rósir og aðrar mikið kynbættar plöntur."

Vinsamlegast athugið að 700 kr. umsýslugjald leggst á hverja fræpöntun.

Vörunúmer (SKU): FRÆ 0792 Flokkar: , , Tags: ,