
Aquilegia karelinii – Melavatnsberi
250kr.
Fjölær en oft skammlífur. Hæð 75 cm. Blóm purpura/fjólublá fyrri hluta sumars. Þrífst í sól og rakaheldum en vel framræstum jarðvegi. Vatnsberar eru almennt harðgerðir og blómviljugir en blómstra ekki á fyrsta ári. Vatnsberar geta sáð sér talsvert og sé þess ekki óskað er ráðlegt að klippa blómstöngla af að blómgun lokinni. Vatnsberi/Sporasóley frjóvgast með opinni frjóvgun og getur því víxlfrjóvgast við aðrar vatnsberategundir.
Á lager