Lög Matjurtaklúbbsins:
1. gr. Nafn klúbbsins er Hvannir – Matjurtaklúbbur GÍ
2. gr. Markmið klúbbsins er að auka ræktun og þekkingu á mat- og kryddjurtum. Til að ná því markmiði ætla klúbbfélagar að: Safna saman þekkingu og reynslu í ræktun mat- og kyddjurta hérlendis. Miðla þekkingu með skrifum og fyrirlestrum. Standa fyrir skoðunarferðum fyrir klúbbfélaga. Standa fyrir fræðslu í matargerð matjurta. Stuðla að því að Hvannir – Matjurtaklúbbur verði vettvangur til fræðslu og gleði fyrir félagsmenn.
3. gr. Innganga í klúbbinn er heimil félögum í Garðyrkjufélagi Íslands sem heldur skrá um félagsmenn.
4. gr. Aðalfund skal halda í september ár hvert. Boða skal fundinn skriflega með minnst 14 daga fyrirvara.
5. gr. Stjórnina skipa formaður, varaformaður og einn meðstjórnandi. Skulu þeir kosnir á aðalfundi til tveggja ára í senn, samkvæmt uppástungu frá a.m.k. tveim fundarmönnum. Formaður er kosinn í fyrsta sinn til tveggja ára en varaformaður og meðstjórnandi sitja aðeins eitt ár fyrsta árið og síðan eru þeir kosnir til tveggja ára eftir það. Hætti formaður störfum á kjörtímabilinu tekur varaformaður við en kjósa skal formann á næsta aðalfundi. Hætti aðrir stjórnarmenn jafnframt störfum tekur formaður Garðyrkjufélagsins við stjórn klúbbsins og skal hann boða til aðalfundar eigi síðar en mánuði frá því stjórn hætti störfum.
Samþykkt á stofnfundi klúbbsins 23. september 2003.
Garðarnir í Gorvík eru með Facebook síðu: Gorvík Grafarvogi