Frælisti GÍ 2020

Helsta uppistaða fræbankans eru fræ sem árlega berast félaginu frá félagsmönnum og velunnurum. Árlega er gefur Garðyrkjufélag Íslands út frælista með hundruðum tegunda og yrkja plantna. Á lista Fræbankans 2020 eru um 500 tegundir og yrki.

Helsta uppistaða fræbankans eru fræ sem félaginu berast árlega frá félagsmönnum og öðrum velunnurum GÍ. Garðyrkjufélagið ábyrgist ekki um spírun fræja né heldur að öll séu nákvæmlega af þeirri tegund sem tilgreind er. Þar verður reynsla hvers og eins að skera úr um nákvæmni greiningar.

Hér að neðan gefur að líta frælista félagsins (Index seminum) fyrir árið 2020. Ýmsar tegundir eru til í takmörkuðu magni og því gildir hér gamla góða reglan um að „fyrstur kemur, fyrstur fær.“ 

Nú er í fyrsta sinn hægt að ganga rafrænt frá fræpöntun og greiðslu hér á síðunni. Hægt er að kaupa staka fræskammta en jafnframt er hægt að kaupa fræpakka sem innihalda 20-30 fræ að eigin vali. Hafa ber í huga þegar að keypt eru stök fræ, að umsýslu kostnaður að upphæð 500 kr. leggst á allar pantanir undir 2000 kr..

 Athugið að listinn er í stöðugri þróun sem hægt er að fylgjast með á þessari síðu eða í vefversluninni.

wdt_ID Númer Latneskt heiti Íslenskt heiti
1 1 Abies fraseri Glæsiþinur
2 2 Abies koreana Kóreuþinur
3 3 Abies normanniana Nordmannsþinur
4 4 Abies procera Eðalþinur
5 5 Acer japonicum Japanshlynur
6 6 Acer monspessolanum Hlynur frá Montpellier
7 7 Acer opalus Ítalahlynur
8 8 Achillea millefolium * Vallhumall *
9 9 Aconitum napellus Venusvagn/Bláhjálmur
10 10 Actaea neglecta Nunnuþrúgu hvítur
Númer Latneskt heiti Íslenskt heiti