Aquilegia vulgaris ‘Tower light blue’ – Skógarvatnsberi ‘Tower light blue’

250kr.

Fjölær. Hæð 60-80 cm. Blómgast snemma sumars. Blóm ljósblá eða fjólublá. Þrífst í sól eða hálfskugga í næringarríkum léttum jarðvegi. Fræ spírar við lágt hitastig og getur tekið nokkurn tíma. Vatnsberar eru almennt harðgerðir og blómviljugir en blómstra ekki á fyrsta ári. Vatnsberar geta sáð sér talsvert og sé þess ekki óskað er ráðlegt að klippa blómstöngla af að blómgun lokinni. Vatnsberi/Sporasóley frjóvgast með opinni frjóvgun og getur því víxlfrjóvgast við aðrar vatnsberategundir.

Fræ af yrkjum er yfirleitt ekki einsleitt. Það getur blandast milli yrkja og jafnvel milli tegunda sömu ættkvíslar. Þetta á t.d. við um vatnsbera, blágresi, ávaxtayrki, yrki af japanshlyn, rósir og aðrar mikið kynbættar plöntur."

Vinsamlegast athugið að 700 kr. umsýslugjald leggst á hverja fræpöntun.

Vörunúmer (SKU): FRÆ 0645 Flokkar: , , Tags: ,