Inniræktun matjurta
Zia Allaway (Íslensk þýðing Helga Jónsdóttir)
Í bókinni er sýnt í máli og myndum hvernig unnt er að rækta ýmislegt ætilegt innan veggja heimilisins. Falleg og eiguleg bók, sem hentar jafnt fyrir byrjendur sem reynsluríka ræktendur. Vaka-Helgafell 2018
Félagsmenn Garðyrkjufélagsins fá 15% afslátt(3.550kr.-)
Bækur
surkal-fyrir-saelkera
Súrkál fyrir sælkera
Súrkál fyrir sælkera
Höfundur: Dagný Hermannsdóttir
Súrkálsdrottningin Dagný Hermannsdóttir hefur haldið fjölda vinsælla námskeiða um allt land á undanförnum árum. Í bókinni gefur Dagný leiðbeiningar um grunnaðferðir í súrsun grænmetis. Auk þess eru í bókinni fjöldi einfaldra sælkerauppskrifta að súrkáli og öðru gerjuðu grænmeti, chutneyi, söltuðum sítrónum, kimchi og fleira góðgæti.
Falleg og myndskreytt bók sem kemur að góðum notum við að varðveita uppskeru sumarsins á sem bestan hátt og nýta grænmeti á hollan og gómsætan máta.
Vaka-Helgafell 2018
Bækur
100-av-vare-beste-roser
100 av våre beste roser
Dag Lyngar fjallar um þær 100 rósir sem best hafa reynst við norskar aðstæður. Valið byggir á reynslu höfundar og fleiri. Mynd af hverri rós fyrir sig og nafngift hennar, ásamt nánari umfjöllun, s.s. ræktun og meðhöndlun.
Bækur
betonstobning
Beton stöbning
Bækur
botany-for-gardeners
Botany for gardeners
Hvað gerist í fræi eftir að það fer í mold? Hvernig eru plöntur uppbyggðar og hvernig fjölga þær sér. Þessum spurningum og fleiri er svarað í þessari bók sem ætlað er að hjálpa ræktendum að skilja ’sjónarmið’ plöntunnar sjálfrar.
Bækur
britains-wild-harvest
Britain´s wild harvest
Villtar plöntur og sveppagróður skipta miklu máli í ræktun og efnahagslífi. Í þessari bók er fjallað um hvaða villtu plöntur Skipta mestu máli í Bretlandi, hvernig þeim er safnað og komið á markað – þ.e. í almenna notkun.
Bækur
buried-treasures
Buried treasures
Bók eftir Janis Ruksans um hinar ýmsu laukplöntur.
Bækur
champion-tree-of-britain-and-ireland
Champion trees of Britain and Ireland
Fjallað um hverskonar tré sem vaxa í Bretlandi og á Írlandi – yfir 5000 tegundir alls, allt frá fyrstu trjám sem talin eru hafa vaxið á Bretlandseyjum til nýjustu afbrigða.
Bækur
the-complete-book-of-potatoes
The complete book of potatoes
Afar ítarlegt rit fyrir þá sem rækta kartöflur, hvort heldur er í heimagarði eða í atvinnuskyni. Þarna er allt að finna sem kemur að gagni. Miðað er við ræktun í Norður-Ameríku – en getur vel gagnast hérlendis.
Bækur
container-gardening-for-all-seasons
Container gardening for all seasons
Eftir Barböru Wise. Eins konar innkaupalisti fyrir þá sem vilja rækta í pokum eða kerjum á svölum eða veröndum. Rúmlega 100 dæmi sýnd. Bókin er byggð upp eins og uppskriftabók og hentar þannig jafnt byrjendum sem lengra komnum.
Bækur
containers-for-patios
Containers for patios
Eftir Val Bourne og Richard Rosenfeld. Eins konar byrjunarnámskeið fyrir eigendur lítilla garða sem vilja nýta tíma sinn og framlag sem best. Ríkulega myndskreytt með glöggum leiðbeiningum.
Bækur
cut-flowers-of-the-world
Cut flowers of the world
Eftir Johannes Maree og Ben-Erik Van Wyk. Afskorin blóm eru seld árlega fyrir milljarða króna um allan heim. Hér er fjallað um þau blóm sem mest eru ræktuð til sölu í blómabúðum. Bókin er skrifuð af þekkingu. Lýst er rúmlega 350 tegundum sem mest seljast.
Bækur
den-hvide-have
Den hvide have
Eftir Claus Dalby. Bók sem margir hafa beðið, segir útgefandinn. Dalby lýsir sér sínum hvíta garði í Risskov og fjallar að auki um hvíta garða víða um Evrópu þar sem lögð er megináhersla á hvítblómstrandi blóm, tré og runna.
Bækur
den-levende-have
Den levende have
Fyrsta garðabók danska garðyrkjumannsins Claus Dalby kom fyrst út 2004 en hefur verið endurútgefin hvað eftir annað. Margir garðeigendur á Norðurlöndum segjast þá fyrst hafa fengið raunverulegan garðyrkjuáhuga eftir að hafa séð bókina og lesið sér til um náttúrulega garðrækt.
Bækur
designing-and-renovating-larger-gardens
Designing and renovating larger gardens
Eftir Douglas Coltart, margverðlaunaðan landslagsarkitekt. Hér er að finna hagnýtar leiðbeiningar um hönnun og endurgerð stærri garða – helst ekki undir 1000 m2.
Bækur
easy-pruning
Easy pruning
Eftir Colin Crosbie, gefin út af breska garðyrkjufélaginu (Royal Horticultural Society). Mikil samsöfnuð þekking og reynsla af klippingu blóma, runna og trjáa, hvenær er best að klippa og hvenær ekki, hvernig á að gera það. Hentar kunnáttufólki og nýgræðingum.
Bækur
en-haverejse-til-syd-england
En haverejse til syd England
Eftir Hans Peder Christiansen. Höfundur er kunnur garðyrkjumaður í Danmörku og rekur vefinn www.gardening.dk. Hér segir hann frá heimsóknum í fræga enska skrautgarða á borð við Sissinghurst, Great Dixter, Hidcote og Kiftsgate.
Bækur
encyclopedia-of-plants-and-flowers
Encyclopedia of plants and flowers
Eftir Christopher Brickell. Í þessari alfræðibók sem samin var með aðstoð sérfræðinga breska garðyrkjufélagsins eru myndir af rúmlega 4000 plöntum og blómum, flokkuðum eftir lit, stærð og gerð. Prýðileg bók að hafa til hliðsjónar við val á plöntum í stóran garð eða lítinn.
Bækur
flet-med-naturens-materialer
Flet med naturens materialer
Eftir Jette Mellgren. Fléttur og tágar í garðinum, allt með náttúrulegum efnum. Góð og hagnýt ráð um fléttun með nýjum og eldri efnum, gamlar aðferðir og nýjar.
Bækur
flower-arranging
Flower arranging
Eftir Judith Blacklock. Margra ára reynsla sett fram á skýran og einfaldan hátt. Ríkulega myndskreytt bók með skýringarteikningum sem gera öllum kleift að búa til glæsilegar blómaskreytingar.
Bækur
food-plants-of-the-world
Food plants of the world
Eftir Erik van Wyk. Einstök bók um ætilegar plöntur af öllu tagi og hvernig má nota þær og neyta. Höfundurinn hefur kannað svo gott sem allar ætar plöntur sem komast má yfir í samtímanum, sagði Washington Post um bókina. Ein síða um 350 plöntur sem etnar eru víða um heim og rúmlega 1000 ljósmyndir. Listi yfir um 800 plöntur fylgir.
Bækur
fruit-trees-in-small-spaces
Fruit trees in small spaces
Fruit Tress in small spaces
Höfundur: Colby Eierman
Loksins bók á ensku um ræktun ávaxtatrjáa í litlum görðum. Bókin er góð viðbót við það sem hefur verið fáanlegt á markaðnum.
Bækur
glade-jul-dejlige-jul
Glade jul - dejlige jul
Eftir Peter Bay Alexandersen. Um danska jólasiði. Glade jul, dejlig jul er danska utgáfan af Heims um ból.
Bækur
good-fruit-and-veg-guide
Good fruit and veg guide
Frá breska garðyrkjufélaginu (RHS). Sérfræðingar RHS hafa valið rjómann af garðávöxtum og grænmeti. 125 ljósmyndir og hnitmiðaðar lýsingar fyrir þá sem vilja reyna eitthvað nýtt. Tilvalin handbók fyrir byrjendur og lengra komna. Miðuð við vaxtarskilyrði í Bretlandi.
Bækur
growing-garden-bulbs
Growing garden bulbs
Fátt gleður garðeigendur meira en að sjá fyrstu angana koma upp úr moldinni á vorin, hvort eru tulipanar, krókusar eða liljur. Allt verður til af lauk sem best er að setja niður haustið áður – og geta veitt gleði ár eftir ár. Höfundurinn, Richard Wilford, hefur yfirumsjón með harðgerum tegundum í Konunglega breska grasagarðinum í Kew.
Bækur
growing-roses-in-calgary
Growing roses in Calgary
Útgefandi: Calgary Rose Society
Verðlaunabók um ræktun kanadískra rósa.
Bækur
the-handbook-of-natural-plant-dyes
The Handbook of Natural plant dyes
Bækur
heather-angels-wild-kew
Heather Angel´s Wild Kew
Um skordýralíf í grasagarðinum í Kew, glæsilegar myndir eftir þekktan náttúrulífsljósmyndara í Bretlandi sem varði heilu ári til verksins. Margskonar góð ráð sem henta í heimagörðum.
Bækur
the-herbarium-handbook
The herbarium handbook
Yfirgripsmikil handbók um hvaðeina sem lýtur að töku og varðveislu plantna og plöntuhluta.
Bækur
high-impact-low-carbon-gardening
High-impact, Low-carbon gardening
Um aðferðir garðyrkjunnar til að vinna gegn loftlagsáhrifum með ræktun og bindingu kolefnis og sjálfbærri þróun.
Bækur
50-high-impact-low-care-garden-plants
50 High-impact, Low-care garden plants
Fagrar plöntur eru ekki endilega þær sem þurfa mestu umhirðu. Hér er fjallað um valdar tegundir garðjurta sem vekja athygli fyrir fegurð en eru ekki mjög kröfuharðar um vinnu.
Bækur
how-to-grow-a-school-garden
How to grow a school garden
Mikilvægar leiðbeiningar fyrir kennara og foreldra til að beina áhuga ungs fólks að garðyrkju og heilbrigðum lífsstíl.
Bækur
how-to-grow-practically-everything
How to grow practically everything
Grundvallarrit fyrir þá sem eru ekki fullnuma í garðyrkjunni. Fullt af hagnýtum upplýsingum.
Bækur
juleroser-og-paskeklokker
Juleroser og påskeklokker
Eftir Claus Dalby. Fjallar um helgirósa-ættkvíslina "helleborus" en meðal þeirra eru einna þekktastar jólarósir og fösturósir sem eru í miklu uppáhaldi hjá flestum ræktendum.
Bækur
kews-big-trees
Kew´s big trees -
Trjásafnið í Kew er m.a. heimsfrægt fyrir sín stóru tré sem veita öllum ræktendum innblástur í ræktunarstarfið. Hér er helstu stóru trjánum lýst með fróðlegum texta og myndum.
Bækur
lawns-and-ground-cover
Lawns and ground cover
Um viðhald grasflata og þekjandi jurtir sem geta leyst grasið af hólmi.
Bækur
the-lost-art-of-potato-breeding
The lost art of potato breeding
Eftir Rebsie Fairholm. Til eru þúsund tegundir af kartöflum með mismunandi lit, bragð, útlit og eiginleika. Bókin fjallar um einkenni og fjölbreytileika þeirra.
Bækur
laekningajurtabaekur-usa
Lækningajurtabækur USA
Nútíma lyfjafræði byggir á aldalangri reynslu af hagnýtingu jurta til lækninga.
Bækur
maria-thuns-havebog
Maria Thuns havebog
Bækur
my-garden-the-city-and-me
My garden, the city and me
Bækur
overleaf
Overleaf
Bækur
poisonous-plants
Poisonous plants
Bækur
the-professional-design-guide-to-green-roofs
The professional design guide to green roofs
Hönnun á lifandi þaki er meira en bara að smella mottu af þykkblöðungum eða sá grasfræjum í smá jarðvegslag á þakinu. Hér er farið yfir hönnun, umhverfismál, o.fl. og því tilvalið fyrir hvern þann sem er í slíkum hugleiðingum.
Bækur
the-professional-designers-guide-to-gard
The professional designers guide to gard
Bækur
the-pruning-of-trees-shrubs-and-conifer
The pruning of trees, shrubs and conifer
Bækur
rhubarbaria
Rhubarbaria
Bækur
rosor-for-nordiska-tradgard-klatterosor
Rosor för nordiska trädgård Klatterosor
ROSOR för nordiska trädgärdar
buskrosor
Lars-Åke Gustavsson
2. bindi runnarósir
933 tegundum og yrkjum sem er lýst og greinargóðar lýsingar á eiginleikum rósanna, s.s. vaxtarlag, blómlögun, lit og ilm svo og hegðun í ræktun við mismunandi vaxtarskilyrði. Frábærar myndir af öllum rósunum prýða bókina. Bókin er 510 bls. með fjölda ljósmynda.
Bækur
rosor-i-norr
Rosor i norr
Rosor i norr
Höfundur: Leif Blomqvist
Loskins er komin út bók sem margir hafa beðið eftir, um Kanadískar rósir sem vaxa á norðlægum slóðum.
Höfundur bókanna er Íslandsvinurinn Leif Blomqvist sem hefur einnig skrifað bækurnar Våra fruktsorte og Trädgårdens bär sem notið hafa mikilla vinsælda hér á landi.
Bókin er 208 bls. og prýdd fjölda ljósmynda.
Bækur
storing-your-home-grown-fruit-and-vegeta
Storing your home grown fruit and vegeta
Bækur
sa-kalender
Så kalender
Så Kalender 2015
Höfundur: Maria Thuns
Fyrir matjurtaræktendur sem sá og uppskera skv. stöðu himintungla.
Bækur
tante-grons-have
Tante Gröns have
Bækur
tasha-tudors-have
Tasha Tudors have
Bók um garðrækt og grípandi hugmyndir Tasha Tudor um garðrækt og hennar lífssýn, myndirnar í bókinni eru frábærar.
Bækur
the-apple-book
The apple book
The apple book
Höfundur: Rosie Sanders
Eiguleg og falleg bók fyrir alla eplaræktendur.
Bækur
the-maria-thun-biodynamic-calendar
The Maria Thun biodynamic calendar
Þessi bók fjallar um heppilegar tímasetningar útplöntunar og sáningar og einnig um tímasetningar vinnu með býflugur
Bækur
the-colours-of-reality
The colours of reality -
Þetta er bók um lífshlaup Rory McEwen sem frægur er fyrir listrænar myndir af plöntum
Bækur
the-edible-balcony
The edible balcony
Fjallar um matjurtaræktun á svölum og þar sem er lítið rými.
Bækur
the-genus-betula
The genus Betula
The Genus Betula
Höfundur: Kenneth Ashburner og Hugh A. McAllister
Bókin um birkið er nú loksins fáanleg. Bókin er 431 bls., prýdd fjölda ljósmynda.
Bækur
the-genus-epimedium
The genus Epimedium
Bók um ættkvíslina Epimedium (Mítursætt) og skylda fjölæringa.
Bækur
the-genus-sorbus
The genus Sorbus
Frábær bók eftir Hugh Mac Alister um hina tegundaríku reyniættkvísl. Í bókinni er fjallað um meira en 60 tegndir reynitrjáa og erfðarfræðileg tengsl þeirra.
Bækur
til-nytte-og-nydelse
Til nytte og nydelse
Bók eftir Birgit Helbo um garð- og matjurta ræktun og skipulag slíkra garða
Bækur
tradgardens-bar
Trädgårdens bär
Trädgårdens bär
Höfundur: Leif Blomqvist
Allt um berjaræktun. Auk hefðbundinna berjategunda er fjallað um hafþyrniber, reyniber, amalber, stikilsber, vínber, rósanýpur, kirsuber, bláber, hindber og fleiri vannýttar tegundir sem hægt er að rækta í heimilisgarðinum. Leiðbeiningar um klippingu, ræktun og ræktunarvandamál og nýtingu uppskerunnar. Fjöldi mynda er í bókinni. Bókin er 224 bls.
Verð: 5,270 krónur til félaga GÍ. Kr. 6.200 til annarra.
Bækur
vintergaekker
Vintergækker
Dönsk bók um vetrargosa (Galanthus).
Bækur
vara-fruktsorter
Våra fruktsorter
Våra fruktsorter
Höfundur: Leif Blomqvist
Allt um ræktun ávaxtatrjáa á norðlægum slóðum. Fjallað um eiginleika mismunandi yrkja af epla-, peru-, plómu- og kirsuberjasortum. Góðar myndir eru af ávöxtum allra þeirra ávaxtatrjáa sem nefnd eru í bókinni. Leiðbeiningar um klippingu, ræktun og ræktunarvandamál og nýtingu uppskerunnar. Bókin er 272 bls.
Bækur
prydgress
Prydgress
Bækur
norske-klosterplanter
Norske klosterplanter
Bók um forna klausturgarða í Noregi. Í görðunum ræktuðu munkar og nunnur bæði grænmeti og lækningarjurtir. Eftir siðaskiptin lögðust klaustrin af en ennþá finnast í görðunum áhugaverðar jurtir.
Bækur
nordisk-jul
Nordisk jul
Bækur
glaedelig-juleinspiration
Glædelig juleinspiration
eftir Irene Hunderup. Höfundur sýnir hér hvernig nýta má náttúrugersemar í fagrar jólaskreytingar. Sannköllið jólagleði.
Bækur
eventyrlig-jul
Eventyrlig jul
eftir Else Marie Andersen. Í bókinni má finna leiðbeiningar og hugmyndir að jólaskreytingum úr náttúrulegum efnum, svo sem greni, könglum, berki, mosa og blómum og ímyndunaraflinu gefin laus taumur.
Bækur
niwaki-pruning-training-and-shaping
Niwaki. Pruning, training and shaping
eftir Jake Hobson. Niwaki er japönsk aðferð við ræktun trjáa þar sem áhersla er lögð á mótun og klippingu til að ná fram þeim áhrifum sem maður sækist eftir í sinn garð. Her er leitast við einfaldleika í tegundum en fjölbreytileika í mótun og klippingum.
Bækur
100-edible-healing-flowers
100 edible & healing flowers
eftir Margaret Roberts. Í bókinni má finna fjölmörg ráð við að nýta plöntur til fleira en yndisgróðurs, svo sem í mat, snyrtivörur og til bættrar heilsu.
Bækur
12-glaesilegir-gardar
12 glæsilegir garðar
12 Glæsilegir garðar
Höfundur: Auður I. Ottesen og Páll Jökull Pétursson
Einstök bók um 12 glæsilega garða og eigendur þeirra sem hafa með þrautseigju og elju skapað einstaka veröld í görðum sínum.
Bókin er 144 blaðsíður.
Bækur
barrtre-a-islandi
Barrtré á Íslandi
Barrtré á Íslandi
Ritstjóri: Auður I. Ottesen
Um sígrænar tegundir sem eru í ræktun hér á landi, sem ýmist eru vel kunnar eða lítt reyndar en talið að geti þrifist við íslensk skilyrði. Fjallað um uppruna tegundanna, afdrif þeirra á Íslandi, eðli og gerð, fjölgun, erfðafræðilega þætti, umönnun og þrif.
Bókin er 144 blaðsíður.
Bækur
dulin-verold
Dulin veröld
Dulin veröld - Smádýr á Íslandi
Höfundur: Guðmundur Halldórsson, Oddur Sigurðsson og Erling Ólafsson
Heildstætt yfirlit yfir helstu smádýr í íslenskri náttúru. Ljósmyndir sýna okkur inn í veröld sem fæstir hafa augum litið.
Bækur
heilbrigdi-trjagrodurs
Heilbrigði trjágróðurs
Heilbrigði trjágróðurs
Höfundur: Guðmundur Halldórsson skordýrafræðingur og Halldór Sverrisson plöntusjúkdómafræðingur
Aðgengileg og gagnleg handbók, ætluð þeim sem rækta tré sér til ánægju og nytja og öðrum sem hafa áhuga á náttúru Íslands. Hún bætir úr brýnni þörf því ýmsir nýir trjáskaðvaldar hafa borist til landsins á síðustu árum. 160 bls.
Bækur
icelandic-herbs-anna-rosa
Icelandic herbs Anna Rósa
eftir Önnu Rósu Róbertsdóttur. Hér lýsir Anna Rósa íslenskum lækningajurtum, litrík og fræðandi bók þar sem höfundur tengir sögu íslenskrra lækningajurta við nútímann og leiðbeinir um rétta meðhöndlun.
Bækur
islenskar-laekningarjurtir-anna-rosa
Íslenskar lækningajurtir Anna Rósa
Íslenskar lækningajurtir
Höfundur: Anna Rósa grasalæknir
Gerð grein fyrir lækningamætti íslenskra jurta, sögu þeirra og notkun. Í fyrsta skipti í íslensku riti birtist hér samantekt á þeim vísindalegu rannsóknum sem gerðar hafa verið á íslenskum lækningajurtum, bæði hérlendis og erlendis. Leiðbeint er um notkun, tínslu og þurrkun íslenskra lækningajurta og meðal annars kennt að búa til te, seyði, bakstra og tinktúrur.
Bækur
islenska-plontuhandbokin
Íslenska plöntuhandbókin
Íslenska plöntuhandbókin
Höfundur: Hörður Kristinsson grasafræðingur
Í bókinni er að finna litmyndir af 465 tegundum plantna, skýringarteikningar og útbreiðslukort. Við flokkun plantnanna eru notaðir sérstakir myndlyklar þar sem þeim er raðað eftir blómalit og öðrum áberandi einkennum, og einnig eru í bókinni gagnlegir efnislyklar. 364 bls.
Bækur
islenskar-laekningajurtir-arnbjorg-linda
Íslenskar lækningajurtir Arnbjörg Linda
Íslenskar lækningajurtir
Höf.: Arnbjörg Linda Jóhannsdóttir
Íslenskar lækningajurtir kom fyrst út fyrir um 20 árum og hefur verið endurútgefin nokkrum sinnum óbreytt enda verið feikilega vinsæl. Nú kemur bókin út í nýrri mynd, rækilega uppfærð og endurskoðuð með viðbót um kínverskar lækningar.
Bækur
konur-gerdu-gardinn
Konur gerðu garðinn
Konur gerðu garðinn - Saga Lystigarðs Akureyrar 1912-2012
Höfundur: Ásta Camilla Gylfadótir
100 ára Saga Lystigarðs Akureyrar. Bókin segir frá konum sem áttu sér draum og hvernig þær tóku höndum saman um að láta hann rætast. Draumur þeirra hefur lifað fram á þennan dag og tekið á sig margskonar myndir.
Skyldueign á hvert heimili og bókasöfn landsins.
Bókin er 122 bls., í stóru broti og prýdd fjölda ljósmynda.
Bækur
ljufmeti-ur-laekningajurtum
Ljúfmeti úr lækningajurtum
Ljúfmeti úr lækningajurtum
Höfundur: Albert kokkur og Anna Rósa grasalæknir
Fjöldi girnilegra og gómsætra rétta þar sem krydd- og lækningajurtir eru í hávegum hafðar. Næringarríkur morgunmatur, kjöt-, fisk- og grænmetisréttir og ljúffengar súpur að ógleymdum drykkjum, brauði og eftirréttum. Upplýsingar um lækningamátt jurtanna og stungið upp á öðru hráefni þegar ekki fást ferskar lækningajurtir á veturna.
Bækur
matsveppir-i-natturu-islands
Matsveppir í náttúru Íslands
Matsveppir í náttúru Íslands
Ása Margrét Ásgrímsdóttir
Handhæg bók fyrir alla sem hafa áhuga á sveppum og sveppatínslu. Hér er almennur fróðleikur um sveppi, nákvæmar lýsingar á um 30 teg. matsveppa sem finnast hérlendis og fjöldi girnilegra uppskrifta.
Bókin er 170 bls.
Bækur
raektad-kryddad-kokkad
Ræktað - kryddað - kokkað
Ræktað - kryddað og kokkað
Höfundur: Magnús Jónasson
Handbók þeirra sem vilja rækta sitt eigið gæðakrydd – hvort sem er út í garði, á svölunum, í gróðurskálanum eða innandyra. Í bókinni er grunnfróðleikur um ræktun og notkun á kryddjurtum, orðabók, notagildi kryddjurta í mat, hvernig búa má til kryddolíur og kryddedik, myndir af öllum þeim kryddjurtum sem hægt er að rækta hér á landi. Bókin er ríkulega myndskreytt. Í seinni hluta bókarinnar er fjöldi spennandi uppskrifta frá starfandi matreiðslumeisturum.
Bækur
raektum-sjalf
Ræktum sjálf
Ræktum sjálf - Grænmeti, ávexti, kryddjurtir og ber
Björn Gunnlaugsson staðfærði
Handhæg bók fyrir alla, bæði byrjendur og lengra komna. Fróðleikur um hvernig best er að sá ea planta,hvernighægt er að láta ræktunina ganga sembst oghvaða uppskertími henta fyrir hverja tegund.
Bókin er 152 bls.
Bækur
raektun-sumarbloma
Ræktun sumarblóma
Ræktun sumarblóma og skreytingar á leiðum
Höf.: Magnús Jónasson, skrúðgarðyrkjufræðingur
Nauðsynlegt fyrir alla sem vilja rækta eigin sumarblóm. Góðar lýsingar um ræktun frá frá sáningu að ræktun og val á tegundum. Skrár sem auðvelda val á fræjum og blómum.
Bókin er 223 bls.
Bækur
skogaraudlindin
Skógarauðlindin
eftir Aðalstein Sigurgeirsson. Bók þessi hentar skógarbændum og öllum þeim sem áhuga hafa á skógrrækt. Höfundur fer yfir skipulag og framkvæmd og umhirðu skógræktar.
Bækur
skrudur-a-nupi
Skrúður á Núpi
Bók þessi byggir á dagbókarfærslum sér Sigtryggs Guðlaugssonar, prófasts á Núpi í Dýrafirði. Þar er rakin 40 ára ræktunarsaga garðsins og ferlinu fylgt frá því örgrýtisurð þróast í fallegan og gróskumikinn yndisreit.
Bækur
sveppabokin
Sveppabókin
eftir Helga Hallgrímsson. Bók þessi byggir á rannsóknum höfundar á sveppum og er ætluð almenningi og fræðimönnum.
Bækur
sveppahandbokin
Sveppahandbókin
Höfundur: Bjarni Diðrik Sigurðsson. Sveppahandbókin er ómissandi ferðafélagi þegar haldið er í sveppaleiðangur út í íslenska náttúru. Hér er 80 tegundum villtra matsveppa gerð ítarleg skil og jafnframt 20 tegundum eitraðra sveppa sem líkjast þeim og ber að varast. Einnig hagnýtar upplýsingar um sveppi og sveppatínslu almennt; um útbreiðslu og greiningu tegunda, hvenær best er að tína sveppi, um næringargildi þeirra og hvernig þeir skulu meðhöndlaðir þegar heim er komið.
Bækur
trjaklippingar-kilja
Trjáklippingar kilja
Höfundur Steinn Kárason.
Fjallað er um klippingar á 140 algengum trjá- og runnategundum. Nefnd eru um 50 rósaafbrigði vænleg til ræktunar hér á landi. Hagnýt ráð um trjárækt er að finna í bókinni.
Kafli er um lífrænar varnir gegn meindýrum, lífvæna ræktun og sjálfbærni.
Sérstaklega er fjallað um hverning klippa skal epla- og perutré, kirsuberja- og plómutré, vínvið, tómata, gúrkur, melónur og papriku. Bókin er 111 bls., prýdd um 180 skýringarmyndum.
Bækur
verum-graen
Verum græn
Verum græn - ferðalag í átt að sjálfbærni
Höf.: Ásthildur Björg Jónsdóttir, Ellen Gunnarsdóttir og Gunndís Ýr Finnbogadóttir.
Bókin eru hugsuð fyrir börn á grunnskólaaldri og þeirra fjölskyldur og er full af skemmtilegum ráðleggingum og verkefnum tengdum sjálfbærni. Hún sýnir lesendum að það er mun einfaldara og skemmtilegra að tileinka sér sjálfbærar venjur en við höldum.
Bækur
blalandsdrottningin
Blálandsdrottningin
Blálandsdrottningin og fólkið sem ræktai kartöflurnar
Saga ræktunar með sérstakri áhersu á upphaf kartöfluræktunar. Fjallað um mismunandi tegundir og hverjar duga best í mismunandi umhverfi.
Bækur
kryddjurtaraekt-fyrir-byrjendur
Kryddjurtarækt fyrir byrjendur
Hér gefur Auður Rafnsdóttir einföld og gagnleg ráð um ræktun tólf algengra kryddjurta og margs konar nýtingu á þeim. Fjallað er um sáningu og umhirðu kryddjurta, fjölbreyttar aðferðir til að þurrka, frysta og geyma. Í bókinni er fjöldi uppskrifta og hugmynda að nýtingu.
Bækur
stafrofid-i-islenskum-blomum
Stafrófið í íslenskum blómum
Höfundur Edda Valborg Sigurðardóttir. Meginmarkmið bókarinnar er að sýna ljósmyndir af íslenskum blómum í náttúrulegu umhverfi, þannig að ungir jafnt sem eldri lesendur geti þekkt blómin aftur úti í náttúrunni. Á hverri opnu er ljósmynd af íslensku blómi sem á við þann bókstaf í stafrófinu sem stendur efst í horni síðunnar. Þar er einnig vísubrot eða þula þar sem viðkomandi blóm kemur við sögu, fróðleikur um hvar blómið er helst að finna og hvenær það blómstrar. Aftast í bókinni er opna með yfirliti yfir heiti blómanna á íslensku, ensku og latínu, ásamt stuttum texta á ensku um hvert blóm og um íslenska stafrófið.
Bækur
gardraekt-i-satt-vid-umhverfid
Garðrækt í sátt við umhverfið
Eftir Bellu Linde og Lenu Granfelt. Fróðleiksnáma um hefðbundna og lífræna ræktun, hvað unnt er að rækta, hvar, hvenær og hvernig. Fjallað er um jarðveg og hvernig má næra hann og bæta, og undirstöðuatriði moltugerðar. Sagt er frá ræktun á svölum, í matjurtabeðum og gróðurhúsum, og leiðbeint um alla skipulagningu ræktunar, sáningu, vökvun, umhirðu og uppskeru.
Bækur
gardurinn-hugmyndir-ad-skipulagi
Garðurinn - hugmyndir að skipulagi
Garðurinn - Hugmyndir að skipulagi og efnisvali
Höfundur: Auður Sveinsdóttir og Fríða Björg Eðvarðsdóttir, landslagsarkitektar.
Bókin Garðurinn er kjörinn hugmyndabanki fyrir alla þá sem áhuga hafa á garðrækt, jafnt garðeigendur sem sumarbústaðeigendur. Í bókinni er fjallað um undirstöðuatriði í hönnun garða, fjölbreytni i skipulagi og efnissvali.
Bókin er 205 blaðsíður.
Bækur
kraftaverk-hveitigrassins
Kraftaverk hveitigrassins
Kraftaverk hveitigrassins
Höfundur: Dr. Ann Wigmore
Bókin fjallar um lífstíl lifandi fæðu og bætir við og segir frá eigin reynslu, ræktun og notkun hveitigrassins. Bókin er þýdd og endusögð af Eiríki Hermannssyni, sem var nemandi Önnu og stjórnaði síðan heilsustofnunum hennar í Puerto Rico og síðan í Boston.
Bækur
gardblomabokin
Garðblómabókin
Garðblómabókin
Höfundur: Hólmfríður A. Sigurðardóttir
Fjallað um nafngiftir plantna, ræktun, fjölgun, umhirðu, jarðveg, áburð, skjól í görðum, sólreiti, blómabeð, steinhæðir og plöntuval í blómabeð. Tæplega 800 litmyndir af garðblómum í íslenskum görðum prýða bókina. Bókin er 478 bls.
Verð til GÍ félaga 1,400krónur (15% afsláttur)
Verð: 1,647 krónur
Bækur
ad-bua-til-ofurlitinn-skemmtigard
Að búa til ofurlítinn skemmtigarð
Eftir Einar E. Sæmundsen. Einstakt yfirlitsverk um sögu og þróun íslenskrar garðhönnunar eða landslagsarkitektúrs. Umhverfismótunin sett í samhengi við rætur íslenskrar menningar og tengd alþjóðlegum straumum og stefnum. Fjallað er um sögu garða á Íslandi frá elstu tímum en einkum um tímabilið frá þéttbýlismyndun þegar almenningsgarðar og útivistarsvæði urðu hluti af skipulagsgerðinni. Gengið um kunna garða og miður þekkta, og fjallað sérstaklega um feril tveggja frumkvöðla í stétt landslagsarkitekta, þeirra Jóns H. Björnssonar (í Alaska) og Reynis Vilhjálmssonar.
Bækur
hagnyta-pottaplontubokin
Hagnýta pottaplöntubókin
Höfundar: Fran Bailey, Zia Allaway, Magnea J.Matthíasdóttir þýddi. Lýst á einfaldan og skýran hátt, skref fyrir skref, hvernig hægt er að rækta blómlegar og heilbrigðar pottaplöntur og tryggja að þær dafni sem best allan ársins hring. Fjallað er um 175 tegundir og góð ráð gefin um umhirðu, meðal annars hvaða birtu- og rakastig þær þurfa og hvaða næring er best fyrir þær. Ýmsar hugmyndir eru í bókinni að frumlegri uppstillingu plantnanna og sýnt hvernig má útbúa skilrúm með klifurplöntum, blómahengi og blómakrans úr þykkblöðungum, svo fátt eitt sé nefnt.
Dogwood Wolf Willow and other underdogs of the Northern Woods
Dogwood Wolf Willow and other underdogs of the Northern Woods eftir Robert Dale Rogers fjallar um notkun hinna ýmsu jurta sem vaxa í barrskógabeltinu, til náttúrulækninga o.fl. Hér er horft sérstaklega til jurta með ensk heiti sem tengja má dýrum af hundaætt.
Bækur
Please choose input type for columns that you want to edit