Aquilegia flavescens – Mánavatnsberi
250kr.
Fjölær. Hæð 20-70 cm. Blómgun júní. Blómlitur gulur. Þrífst best í sól og lífefnaríkum vel framræstum jarðvegi. Fræi sáð við lágt hitastig. Spírun getur tekið nokkra mánuði. Samheiti Yellow columbine. Vatnsberar eru almennt harðgerðir og blómviljugir en blómstra ekki á fyrsta ári. Vatnsberi/Sporasóley frjóvgast með opinni frjóvgun og getur því víxlfrjóvgast við aðrar vatnsberategundir.