Sorbus sitchensis – Sitkareynir

250kr.

Fremur harðgerður, meðalhár, fremur hægvaxta, sumargrænn runni. Hæð 1,5 – 2 m. Laufið matt, blágrænt, stakfjaðrað. Smáblaðapörin 4 – 5 talsins. Smáblöðin sporbaugótt og tennt á efri hlutanum. Blómin ljós í sveip í júní. Berin ferskjulituð í klösum þroskast að hausti. Fljótlega étin af fuglum. Rauðgulir eða gulir haustlitir.

Sitkareynir sómir sér vel í bland með öðrum runnum og blómum. Millibil 1,5 m. Þolir hálfskugga. Ef klippa þarf sitkareyni ætti helst að gera það að sumarlagi til að forðast reyniátu. Sjaldgæfur hérlendis. Sitkareynir er fræekta (apomictic).

Fræ af yrkjum er yfirleitt ekki einsleitt. Það getur blandast milli yrkja og jafnvel milli tegunda sömu ættkvíslar. Þetta á t.d. við um vatnsbera, blágresi, ávaxtayrki, yrki af japanshlyn, rósir og aðrar mikið kynbættar plöntur."

Vinsamlegast athugið að 700 kr. umsýslugjald leggst á hverja fræpöntun.

Vörunúmer: FRÆ 1151 Flokkar: , , ,