Saxifraga x urbium – Postulínsblóm

250kr.

Fjölær jurt af steinbrjótsætt. Blendingur skuggasteinbrjóts, líkist honum mjög og oft ruglað við hann. Blómstrar hvítum blómum með rauðum doppum megnið af sumrinu. Finnst oft í steinhæðum, en er einnig kátur með heldur rakari jarðveg í sól og hálfskugga. Blómstilkar oft 15-30cm.

Á lager

Fræ af yrkjum er yfirleitt ekki einsleitt. Það getur blandast milli yrkja og jafnvel milli tegunda sömu ættkvíslar. Þetta á t.d. við um vatnsbera, blágresi, ávaxtayrki, yrki af japanshlyn, rósir og aðrar mikið kynbættar plöntur."

Vinsamlegast athugið að 700 kr. umsýslugjald leggst á hverja fræpöntun.

Vörunúmer (SKU): FRÆ 0715 Flokkar: , Tag: