Fjölær. Þúfu myndandi steinbrjótur. Hæð 3-5 cm. Blóm 3-5 cm á hæð, skærgul í júní-júlí. Þrífst í sól og kalkríkum, grýttum vel framræstum jarðvegi.
Fræ af yrkjum er yfirleitt ekki einsleitt. Það getur blandast milli yrkja og jafnvel milli tegunda sömu ættkvíslar. Þetta á t.d. við um vatnsbera, blágresi, ávaxtayrki, yrki af japanshlyn, rósir og aðrar mikið kynbættar plöntur."
Vinsamlegast athugið að 700 kr. umsýslugjald leggst á hverja fræpöntun.