Picea mariana – Svartgreni
250kr.
Sígrænt barrtré, 5-13m hátt. Fræreklar í maí-júní. Harðgert og fremur fallegt sem ungt tré, síður sem gamalt. Nægjusamt, en stendur sig þó betur í frjósamari jarðvegi. Helst þarf að passa að það sé ekki í of miklum skugga, þar sem það þrífst mun betur í sól og verður mun fallegra.
Hentar betur í litla garða en t.d. sitkagreni, þar sem það vex mun hægar og verður mun smærra.
Á lager
Fræ af yrkjum er yfirleitt ekki einsleitt. Það getur blandast milli yrkja og jafnvel milli tegunda sömu ættkvíslar. Þetta á t.d. við um vatnsbera, blágresi, ávaxtayrki, yrki af japanshlyn, rósir og aðrar mikið kynbættar plöntur."
Vinsamlegast athugið að 700 kr. umsýslugjald leggst á hverja fræpöntun.
Vörunúmer: FRÆ 0216 Flokkar: Barrtré, Fræ (Ath. Hámarksfjöldi er 30 tegundir í pöntun), Tré og runnar Merkimiðar: sigraent, Tré