Japansgreni – Picea jezoensi

250kr.

Japansgreni (Picea jezoensis eða Picea yezoensis) er stórt sígrænt tré sem verður 30 til 50 metra hátt og með stofnþvermál að 2 metrum. Það er upprunnið frá norðaustur Asíu, frá fjöllum mið Japan og Changbai fjöllum á landamærum Kína og Norður Kóreu, norður til austur Síberíu, ásamt Sikhote-AlinKúrileyjarSakalínfylki og Kamsjatka. Það vex í svölum en rökum tempruðum regnskógum, og hvergi er útbreiðslusvæðið lengra frá Kyrrahafinu en 400 km.

Börkurinn er þunnur og hreistraður, verður sprunginn á eldri trjám. Krónan er breiðkeilulaga. Sprotarnir eru föl gulbrúnir, hárlausir en með áberandi nálanöbbum. Barrið er nálarlaga, 15 til 20 mm langt, 2 mm breitt, langydd, beggja vegna dálítið kjalað, dökkgrænt að ofan með engum loftaugum, og bláhvítt til hvítt að neðan með tvemur breiðum loftaugarendur.

Á lager

Fræ af yrkjum er yfirleitt ekki einsleitt. Það getur blandast milli yrkja og jafnvel milli tegunda sömu ættkvíslar. Þetta á t.d. við um vatnsbera, blágresi, ávaxtayrki, yrki af japanshlyn, rósir og aðrar mikið kynbættar plöntur."

Vinsamlegast athugið að 700 kr. umsýslugjald leggst á hverja fræpöntun.

Vörunúmer: FRÆ 1121 Flokkar: , ,