Lágvaxinn jakobsfífill/kobbi (10-15cm) sem blómstrar bleiku í júlí/ágúst. Vill sólríkan stað og vel framræstan jarðveg. Frekar kalkríkan, en þolir líka hlutlausan.
Fræ af yrkjum er yfirleitt ekki einsleitt. Það getur blandast milli yrkja og jafnvel milli tegunda sömu ættkvíslar. Þetta á t.d. við um vatnsbera, blágresi, ávaxtayrki, yrki af japanshlyn, rósir og aðrar mikið kynbættar plöntur."
Vinsamlegast athugið að 700 kr. umsýslugjald leggst á hverja fræpöntun.