Aquilegia vulgaris ‘Clematiflora’ – Skógarvatnsberi ‘Clematiflora’

250kr.

Fjölær. Hæð um 50 cm. Blómgun júní-júlí. Blandaðir blómlitir. Þrífst í sól eða hálfskugga í venjulegri garðamold léttri og rakaheldinni vel framræstri. Fræi sáð við 20° C. Fræið spírar yfileitt á 2-3 vikum. Vatnsberar eru almennt harðgerðir og blómviljugir en blómstra ekki á fyrsta ári. Sumir vatnsberar geta sáð sér talsvert og sé þess ekki óskað er ráðlegt að klippa blómstöngla af að blómgun lokinni. Vatnsberi/Sporasóley frjóvgast með opinni frjóvgun og getur því víxlfrjóvgast við aðrar vatnsberategundir.

Ekki til á lager

Fræ af yrkjum er yfirleitt ekki einsleitt. Það getur blandast milli yrkja og jafnvel milli tegunda sömu ættkvíslar. Þetta á t.d. við um vatnsbera, blágresi, ávaxtayrki, yrki af japanshlyn, rósir og aðrar mikið kynbættar plöntur."

Vinsamlegast athugið að 700 kr. umsýslugjald leggst á hverja fræpöntun.

Vörunúmer: FRÆ 0444 Flokkar: , , Merkimiðar: ,

Frekari upplýsingar

Stærð