Aquilegia – Fjallavatnsberablendingur
250kr.
Fjölær. Hæð 60-70 cm. Blómgun júní-júlí. Blóm tvílit blá og hvít. Þrífst í rakaheldum vel framræstum léttum jarðvegi í sól eða hálfskugga. Fræi sáð við lágt hitastig. Spírun getur tekið nokkurn tíma. Vatnsberar eru almennt harðgerðir og blómviljugir en blómstra ekki á fyrsta ári. Vatnsberar geta sáð sér talsvert og sé þess ekki óskað er ráðlegt að klippa blómstöngla af að blómgun lokinni. Vatnsberi/Sporasóley frjóvgast með opinni frjóvgun og getur því víxlfrjóvgast við aðrar vatnsberategundir.