Lög Garðyrkjufélags Íslands – Samþykkt á aðalfundi 18. apríl 2023
1. gr. Skilgreining á félaginu.
Félagið heitir Garðyrkjufélag Íslands og er félag áhugafólks um garðyrkju. Félagssvæði þess er landið allt og er starfsemin rekin á kennitölu Garðyrkjufélags Íslands. Heimili og varnarþing félagsins er í Reykjavík.
2. gr. Hlutverk og markmið félagsins.
Hlutverk Garðyrkjufélags Íslands er að:
Efla, varðveita og miðla þekkingu á garðrækt, fegrun umhverfis og ræktunarmenningu um land allt.
Markmið félagsins eru:
Stjórn félagsins gerir starfsáætlanir um framkvæmd þessara markmiða fyrir komandi almanaksár og kynnir félagsmönnum á aðalfundi félagsins.
3. gr. Gildi félagsins.
Gildi félagsins eru:
4. gr. Félagsmenn.
4.1. Félagsmenn geta allir orðið sem vilja vinna að markmiðum félagsins, þ.m.t. einstaklingar, félagasamtök, fyrirtæki og stofnanir.
4.2. Árgjald er ákveðið á aðalfundi og gildir hvert almanaksár. Greiðsla þess er skilyrði aðildar. Hafi félagi ekki greitt félagsgjald þriggja undangenginna starfsára við árlega álagningu, skoðast það sem úrsögn úr félaginu. Garðyrkjuritið er sent til allra skuldlausra félaga.
4.3. Aðalfundur kýs heiðursfélaga að fengnum tillögum stjórnar. Heiðursfélagar halda félagslegum réttindum en eru undanþegnir félagsgjöldum.
5. gr. Deildir.
5.1. Félagsmenn geta stofnað með sér deildir innan sveitarfélaga eða á ákveðnum landsvæðum.
5.2. Félagsmenn hverrar deildar setja starfsreglur hennar og tilkynna stjórn GÍ til samþykktar.
5.3. GÍ styður fjárhagslega við deildir á grundvelli samþykktra verkefna.
5.4. Deildum er heimilt að standa fyrir eigin fjáröflun þó svo fremi að hún skarist ekki á við almenna fjáröflun GÍ.
6. gr. Klúbbar.
6.1. Innan GÍ geta starfað klúbbar um einstök áhugamál eða afmörkuð svið innan garðyrkjunnar og gegnt þar frumkvöðlastarfi í þágu félagsins. Klúbbar geta tekið þátt í alþjóðlegu samstarf á viðkomandi sviði.
6.2. Félagsmenn er áhuga hafa á að starfa í slíkum klúbbum, innan GÍ, skulu leggja fyrir stjórn GÍ upplýsingar um viðfangsefni eða starfssvið klúbbs og markmið hans, ásamt tillögu að skipulagsformi hans og reglum. Stofnun klúbbs, sem og starfsreglur, skulu ætíð hafa hlotið samþykki stjórnar GÍ. Allir félagsmenn í GÍ skulu eiga jafnan rétt á því að vera skráðir í viðkomandi klúbb og þátttöku í starfi hans.
6.3. GÍ styður fjárhagslega við klúbba á grundvelli samþykktra verkefna af hálfu stjórnar GÍ. Klúbbum er heimilt að standa fyrir eigin fjáröflun þó svo fremi að hún skarist ekki á við almenna fjáröflun GÍ.
6.4. Klúbbur getur ekki skuldbundið GÍ með nokkrum hætti nema að fengnu samþykki stjórnar GÍ. Ef klúbbur óskar eftir að standa fyrir eða að GÍ standi fyrir innflutningi á plöntum eða plöntuafurðum, gilda sérákvæði þessara laga þar um, ásamt því sem stjórn GÍ ákveður, m.a. í sérstökum reglum, sem stjórn GÍ er heimilt að setja.
6.5. Stjórn GÍ getur, að eigin frumkvæði, boðað til aðalfundar einstakra klúbba hafi slíkur fundur ekki verið haldinn síðustu tvö ár eða ef upplýsingar um starfsemi hafa ekki borist. Þá getur stjórn lagt fram tillögu um að leggja niður klúbb ef áhugi á verksviði hans dvínar eða viðfangsefni hans er ekki sinnt.
7. gr. Nefndir.
7.1. Fastanefndir GÍ eru frænefnd og ritnefnd Garðyrkjuritsins.
7.2. Frænefnd er skipuð minnst þremur félagsmönnum, sem kosnir eru árlega á aðalfundi GÍ Frænefndin skiptir sjálf með sér verkum.
7.3. Ritnefnd Garðyrkjuritsins skal skipuð fimm félagsmönnum, sem kosnir eru árlega á aðalfundi GÍ og skal ritstjóri kosinn sérstaklega úr þeim hópi. Að öðru leyti skiptir ritnefnd sjálf með sér verkum.
7.4. Í Garðyrkjuritinu skal birta starfsskýrslu stjórnar GÍ fyrir næstliðið almanaksár ásamt ágripi af starfsskýrslum deilda, klúbba og starfsnefnda GÍ. Að öðru leyti annast ritnefnd Garðyrkjuritsins um árlega útgáfu þess og ákveður efnisval og uppsetningu, sem og annast önnur verkefni þess vegna, m.a. prentun ritsins. Ritnefnd skal leitast við að hafa efni ritsins fjölbreytt með það í huga að það höfði til sem flestra félagsmanna í GÍ, jafnframt því að reynt sé að sinna almennri fræðslu um garðyrkju.
7.5. Starfsmaður GÍ, skipaður af stjórn, starfar með ritnefnd og veitir henni aðstoð eftir föngum.
8. gr. Innflutningur.
Stjórn GÍ skal setja sérstakar reglur um innflutning plantna og plöntuafurða. Þær skulu m.a. fjalla nánar um verkferla við ákvarðanir um innflutning, pantanir og greiðslur til seljenda, flutningsaðila o.s.frv. sem og hvaða kröfur séu gerðar um öryggi, m.a. á sviði heilbrigðis plantna og áhættu. Ávallt skal kaupa nauðsynlegar tryggingar fyrir innflutningi á vegum félagsins.
9. gr. Aðalfundur.
Aðalfund skal halda ár hvert fyrir lok apríl. Rekstrarár félagsins er almanaksárið. Fundurinn er lögmætur sé hann tilkynntur á heimasíðu GÍ með minnst eins mánaðar fyrirvara. Fundarboð, dagskrá og tillögur stjórnar um breytingar á lögum skulu berast félögum með tryggum hætti og vera aðgengilegar á heimasíðu GÍ eigi síðar en 14 dögum fyrir aðalfund. Leggja má tillögur um ályktanir fyrir aðalfund á fundinum sjálfum. Á aðalfundum félagsins ræður afl atkvæða, nema lagabreytingar, breytingar á eignarhaldi fasteignar félagsins eða niðurlagning félagsins, þessi atriði þurfa 2/3 hluta greiddra atkvæða. Stjórn félagsins er heimilt að boða til aukaaðalfundar telji hún þess þörf. Um boðun hans gilda sömu reglur og um boðun aðalfundar.
Dagskrá aðalfundar:
1. Fundarsetning
2. Kosning fundarstjóra og ritara
3. Skýrsla stjórnar GÍ
4. Reikningar lagðir fram og skýrðir
5. Umræður um skýrslu stjórnar og reikninga
6. Reikningar bornir upp til samþykktar
7. Ákvörðun félagsgjalds
8. Tillögur um lagabreytingar, umræður og atkvæðagreiðsla
9. Kosning stjórnar, skoðunarmanna reikninga og starfsnefnda
10. Tillögur til ályktunar aðalfundar, umræður og atkvæðagreiðsla
11. Önnur mál
10. gr. Skipun stjórnar og stjórnarkjör.
10.1. Aðalfundur kýs stjórn félagsins sem og skoðunarmenn ársreikninga.
10.2. Stjórn skal skipuð sjö félagsmönnum, þ.e. formanni, varaformanni, gjaldkera, ritara og þremur meðstjórnendum. Formaður og varaformaður skulu kjörnir sérstaklega en að öðru leyti skiptir stjórn með sér verkum. Stjórnarmenn eru kjörnir til tveggja ára. Annað árið skal kjósa um formann og þrjá meðstjórnendur, hitt árið skal kjósa um varaformann og tvo meðstjórnendur. Vilji fulltrúi í stjórn hætta eða hann forfallast til lengri tíma skal kjósa í hans stað á næsta aðalfundi fyrir þann tíma sem eftir er af kjörtímabili viðkomandi stjórnarmanns.
10.3. Tveir skoðunarmenn reikninga eru kosnir til eins árs í senn.
10.4. Félagsmenn sem hafa áhuga á að bjóða sig fram í stjórn félagsins skulu senda formanni félagsins upplýsingar um framboð sitt að minnsta kosti 16 dögum fyrir aðalfund. Framboð til stjórnar skulu kynnt í fundarboði aðalfundar.
10.5. Stjórn er heimilt að fela starfsmanni félagsins prókúru til gjaldkerastarfa.
11. gr. Hlutverk stjórnar.
Stjórnin fer með öll mál félagsins milli aðalfunda, eftir þeim reglum og innan þeirra marka sem lög og aðalfundur setja. Stjórn ber að halda fundargerðir og tryggja viðeigandi skjalavörslu varðandi málefni félagsins. Stjórn félagsins ræður starfsmenn þess og gerir við þá ráðningarsamninga. Hún gætir eigna félagsins og sjóða sem kunna að vera í vörslu þess. Kaup og sala á fasteignum félagsins þarf samþykki 2/3 hluta fundarmanna á aðalfundi eða aukaaðalfundi.
12. gr. Slit á félaginu.
Komi fram tillaga þess efnis að slíta félaginu þarf að leggja hana fram á aðalfundi og skal þess fundarboði. Til að vísa tillögunni til allsherjaratkvæðagreiðslu meðal félagsmanna þarf samþykki 2/3 hluta fundarmanna á aðalfundi. Jafnframt komi fram tillaga á aðalfundi um hvernig eigum félagsins skuli ráðstafað. Skal tillagan borin upp í allsherjaratkvæðagreiðslu um slit þess. Félaginu verður ekki slitið nema með samþykkt 2/3 hluta greiddra atkvæða í allsherjaratkvæðagreiðslu.