Persónuverndarstefna Garðyrkjufélags Íslands
Persónuverndarstefna Garðyrkjufélags Íslands gildir um allar þær persónugreinanlegar upplýsingar sem félagið kann að safna gegnum vef GÍ eða með öðrum rafrænum samskiptum.
Persónuverndarstefna GÍ, kt. 570169-6539, hlítir lögum nr. 90/2018 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Lög um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga ná ekki til lögaðila.
Garðyrkjufélagið hefur persónuvernd og öryggi að leiðarljósi í allri meðferð upplýsinga um viðskiptavini sína og ber ábyrgð á þeim gögnum sem fyrirtækið safnar. Félagið selur aldrei persónugreinanlegar upplýsingar um viðskiptavini sína.
GÍ takmarkar mjög vinnslu persónugreinanlegra upplýsinga og safnar ekki ónauðsynlegum upplýsingum um félagsmenn sína eða starfsmenn. Gildir það um heimsóknir á vef félagsins sem og önnur rafræn samskipti.
Þú getur lesið þér til um grundvallarhugtök laganna á vef Persónuverndar (https://www.personuvernd.is/).
Hvernig safnar félagið upplýsingum?
Þegar þú nýtir þér vefverslun Garðyrkjufélagsins þarft þú að gefa upp tilteknar upplýsingar um þig og einnig verða til upplýsingar um heimsókn þína.
- Dæmi um upplýsingar sem þú gefur upp eru nafn, kennitala heimilisfang, netfang, greiðsluupplýsingar og greiðslukortaupplýsingar*.
- Dæmi um upplýsingar sem verða til við heimsókn þína eru persónugreinanlegar upplýsingar á borð við nafn, kennitala, netfang og símanúmer. Landfræðilegar upplýsingar (hvar þú ert stödd/staddur), tungumálastillingar, vafrastillingar og IP tala.
Án þessara upplýsinga getur GÍ ekki uppfyllt óskir þínar um viðskipti og þjónustu.
Hvað notar GÍ til að safna upplýsingum?
Félagið notar xxx til vefmælinga. Í gegnum það eru ýmis atriði skráð eins og tími heimsókna á vefinn, dagsetning, gerð tækis, vafra og stýrikerfis.
GÍ notar póstforritið xxx til að senda félagsmönnum sínum margvíslegar upplýsingar um starfsemi félagsins.
Félagið notar vafrakökur (e. cookies) og þegar þú smellir á „Ég samþykki“ ertu að leyfa okkur að nota vafrakökur.
Skilmálar vafrakaka
Vafrakökur eru litlar textaskrár, nokkurs konar fótspor sem vistast í tölvu notandans. Þær eru notaðar til að bera kennsl á notendur sem hafa komið áður á vefinn og sníða leit og þjónustu til samræmis við auðkenninguna ásamt því að greina heimsóknir á vefsíðuna.
Aðrar vefsíður eiga ekki að geta lesið upplýsingarnar sem eru geymdar í textaskránni. Með notkun kaka öflum við vitneskju um notkun á vefnum og hvaða efni notendur skoða og getum því aðlagað vefinn betur að þörfum þeirra.
Með því að samþykkja skilmála um notkun á kökum er okkur m.a. veitt heimild til þess að safna og greina upplýsingar eins og t.d.:
- Fjöldi gesta og fjöldi innlita frá gestum
- Lengd innlita gesta
- Hvaða síður innan vefsins eru skoðaðar og hversu oft
- Hvaða stýrikerfi og vafrar eru notuð til að skoða vefinn
- Hvaða leitarorð af leitarvélum vísa á vefinn
- Hvaða vefsvæði vísaði notanda á vefinn
- Hvenær dagsins vefurinn er skoðaður
Allar upplýsingar sem kökurnar gefa okkur eru nafnlausar og eru engar persónulegar upplýsingar vistaðar. Engum upplýsingum er deilt með þriðja aðila.
Í flestum vöfrum er hægt að breyta öryggisstillingum svo að þeir taki ekki á móti kökum. Einnig á að vera hægt að eyða þeim. Nánari upplýsingar um hvernig það er gert má finna í stillingum flestra vafra.
Réttur þinn
Þú átt rétt á að fá aðgang að þeim persónuupplýsingum sem við kunnum að hafa um þig. Þú getur líka í sumum tilvikum átt rétt á að upplýsingar verði leiðréttar eða þeim eytt.
Ef þú vilt fá upplýsingar um persónugreinanlegar upplýsingar sem við kunnum að hafa um þig getur sent okkur tölvupóst á gardurinn@gardurinn.is
______________________________________
*Garðyrkjufélag Íslands geymir engar kortaupplýsingar og fær einungis upplýsingar hvort að greiðsla hafi verið samþykkt eða ekki.