
Svala ætlar að opna fyrir okkur garðinn sinn að Kirkjuvegi 19, Selfossi (rétt við Miðbæinn) sunnudaginn 16.júlí frá kl. 15:00-18:00.
Um er að ræða garð þar sem aldar eru býflugur (Apis mellifera) og ræktun tekur að einhverju leyti mið af því hvað hentar býflugum.
Helst fer ekkert úr garðinum, allt er endurnýtt. Molta og afrakstur Bokashi er notað í ræktun. Nokkur haugbeð eru í garðinum. A.m.k. 4 tegundir af sírenum, fleder (svartyllir), toppar og japanskir hlynir. Lággróður svo sem jarðaber, hnoðrar og dvergavör nýtast í beðum ásamt kurli til að verjast arfa.
Verið velkomin.