
Enn halda heilsubótar- og fræðslugöngur Garðyrkjufélagsins áfram enda er allt árið 2025 tileinkað 140 ára afmæli félagsins.
Þriðjudaginn 22. júlí verða tvær göngur og eru þær þessar:
Hafnarfjörður – Steinar Björgvinsson, framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Hafnarfjarðar leiðir göngu um Höfðaskóg við Hvaleyrarvatn. Mæting er í Gróðrarstöðinni Þöll við Kaldárselsveg og hefst gangan kl. 17.
Tálknafjörður – Lilja Magnúsdóttir, skógfræðingur leiðir göngu um í skógræktina í Tálknafirði. Mæting er við tjaldstæðið í Tálknafirði og hefst gangan kl. 17.
Hver ganga tekur um það bil klukkustund og eru þær öllum opnar.
kveðja, GÍ