Udgivet i

Vetrarsáningar

Matjurtaklúbbur GÍ, Hvannir, stendur fyrir fræðsluviðburði:
Hvað er og hvernig stöndum við að vetrarsáningu matjurta?

Fimmtudaginn 12. febrúar kl. 19:30 í sal Garðyrkjufélagsins Síðumúla 1 (gengið inn frá Ármúla).
Fyrir þá sem misstu af þessum skemmtilega viðburði í fyrra eða þá sem prufuðu og eru með spurningar eða reynslusögur.

Fanney Margrét Jósepsdóttir, formaður Garðyrkjufélags Suðurnesja sýnir hvernig best er að standa að vetrasáningu matjurta.
Farið verður yfir helstu kosti vetrarsáningar en einnig fyrir hverju og hvenær á að sá.
Þá ætlar hún að sýna einfaldar aðferðir sem allir geta prufað og framkvæmt heima.

Öll hjartanlega velkomin og erindið er ókeypis.