Udgivet i

Heilsubótar- og fræðslugöngur Garðyrkjufélags Íslands – 24. júní

Fjórar göngur verða þriðjudaginn 24. júní. Þær eru:

Egilsstaðir – Jón Kristófer Arnarson, garðyrkjustjóri Múlaþings, stýrir
göngu um Tjarnargarðinn á Egilsstöðum. Mæting er við sviðið í
Tjarnargarðinum kl. 17.

Njarðvík Berglind Ásgeirsdóttir, umhverfisstjóri Reykjanesbæjar,
stýrir göngu um Njarðvíkurskóg. Mæting er við bílastæði við horn
Afreksbrautar og Hjallavegar kl. 17.

Kópavogur Friðrik Baldursson, garðyrkjustjóri Kópavogsbæjar, stýrir
göngu um Hlíðargarð og nágrenni. Mæting er við tjarnargarðinn við
Fífuhvamm kl. 17. Gangan er einnig hluti af afmælisdagskrá Kópavogsbæjar
í tilefni af 70 ára afmæli bæjarins.

Reykjavík Guðríður Helgadóttir, formaður Garðyrkjufélags Íslands
stýrir göngu um Grasagarðinn í Reykjavík. Mæting er við innganginn í
Grasagarðinn, við Húsdýragarðinn kl. 20.

Hver ganga tekur um klukkustund og eru öllum opnar.