Udgivet i

Kartöfluspjall með Dagnýju Hermanns

Fræðsluerindi verður miðvikudaginn 25. mars kl. 19:30 í sal Garðyrkjufélagsins Síðumúla 1 (gengið inn frá Ármúla).
Dagný ætlar að spjalla um fegurðina í kartöflum, hvernig við sem áhugafólk getum leikið okkur að því að auka fjölbreytileika í kartöflugörðunum okkar og hversu einfalt það er í raun að rækta ný yrki af bótanisku fræi.

Fundurinn er öllum opinn og á boðstólum verður kaffi/te og eitthvað smálegt með.

Ef næst að streyma viðburðinum verður slóðin auglýst hér þegar nær dregur.

Hvannir, matjurtaklúbbur